Skip to main content

 

Omega fæðubótarefni

Hvers vegna eru Omega-3 fitusýrur mikilvægar fyrir þig?

 

Omega fæðubótarefni

Hvers vegna eru Omega-3 fitusýrur mikilvægar fyrir þig?

Omega-3 fitusýrur eru nauðsynleg næringarefni sem styðja við mikilvæga starfsemi líkamans. Margir eiga erfitt með að ná ráðlagðri neyslu þessara næringarefna í gegnum mataræðið eitt og sér.

Image

Formúlan okkar sameinar Omega-3 og náttúruleg andoxunarefni úr ólífuolíu til að hjálpa til við að vernda fitusýrurnar gegn oxun. Láttu á það reyna með prófi.  

Kynntu þér BalanceOil+
Næstu kynslóð af Omega-3 fæðubótarefnum

Image

Vísindalega sönnuð formúla, prófuð af þriðja aðila með tilliti til ferskleika, hreinleika og virkni fyrir varanlegan ávinning.

Sannaður ávinningur af Omega-3

Viðheldur heilbrigðri hjarta-, heila- og ónæmisstarfsemi.

Styður við ákjósanleg Omega-6:3 gildi.

Image

Stuðlar að eðlilegri sjón, eðlilegum beinum og eðlilegri vöðvavirkni þar sem dagskammtur inniheldur 20µg af D3–vítamíni

Hjálpar til við að viðhalda eðlilegum blóðþrýstingi með jákvæðum áhrifum af 3 g EPA+DHA/dag (19 ml af BalanceOil+).

BalanceOil+ í hnotskurn

Okkar sérsniðna norska formúla

Varan er í sérflokki, og notar öflugustu andoxunarefni náttúrunnar til að halda Omega-3 fitusýrunum ferskum og öflugum, sem gerir þær auðveldari til upptöku í líkamanum.

60% hrein, hágæða fiskiolía úr smáum, villtum sardínum, makríl og ansjósum, unnin á sjálfbæran hátt úr Kyrrahafi og Atlantshafi.

 

40% úrvals, extra virgin ólífuolía úr snemmtíndum ólífum, sem inniheldur sömu andoxunarríku pólýfenólin sem finnast náttúrulega í fiski.

 

Auk þess, inniheldur varan D3-vítamín sem er unnið úr lanólíni og tókóferól af náttúrulegum uppruna úr mjög hreinsaðri sojabaunaolíu.

 

balanceoil-spec-labels.svg

Not all Omega-3 is created equal

Omega-3s vary in quality and content, and oxidation starts the minute the fish is out of the ocean. Getting enough fresh and potent omega-3 depends on our age, weight, lifestyle, and which ones we consume.

Sourcing matters
Most of the fish we find in stores is farmed—convenient and affordable, but low in the key Omega-3s EPA and DHA we need.

  • EPA is linked to heart health and the immune system
  • DHA is particularly known for its importance in the brain.

 

Size matters too
Large, lean fish like cod store most of their EPA and DHA in the liver, where contaminants from the sea tend to accumulate. Small, wild-caught fish store their EPA and DHA in their tissue. They are also lower in the food chain, with fewer toxins.

  • Mackerel: >> 2,200mg Omega-3/serving
  • Sardines: 800 mg/serving
  • Salmon: 1200 mg/ serving
  • Cod: 100 mg/serving

Unnið á sjálfbæran hátt, auðmeltanleg innihaldsefni

Vandlega valin með hámarks ferskleika og næringarþéttleika að leiðarljósi, byggt á uppskeru á besta tíma og umhyggju fyrir plánetunni.

Prófað af þriðja aðila fyrir ferskleika, hreinleika og virkni

 Til að styrkja viðurkenningu okkar sem leiðandi í hreinni, prófmiðaðri næringu, eru framúrskarandi gæði BalanceOil+ varanna okkar staðfest með virtum og alþjóðlega viðurkenndum vottunarstöðlum.

Við virðum framúrskarandi staðla í greininni

Við fylgjum ströngustu gæða- og starfsreglum og höfum eftirlit með allri fiskiolíuframleiðslunni til að vernda næringarefnin og skila hreinum, öflugum og stöðugum fæðubótarefnum sem þú getur treyst.

„Sérsniðin formúla okkar inniheldur einstakt hlutfall af EPA og DHA til að veita ráðlagðan dagskammt af Omega-3.“

 
Dr. Emmalee Gisslevik,
Yfirsérfræðingur í rannsóknum og þróun hjá Zinzino

Ferskt og bragðgott úrval

Veldu á milli auðmeltanlegs vökva, auðkyngdra hylkja, vatnsleysanlegrar formúlu og vegan valkosts.

BalanceOil+ Vegan

Fyrsta plöntubundni valkosturinn við fiskiolíu sem býður upp á umtalsvert magn af bæði EPA og DHA - vottað af The Vegan Society.

BalanceOil Tutti Frutti

Barnvæna formúlan okkar með Tutti Frutti bragði, og ráðleggingum um skammta sem henta aldri.

BalanceOil+ AquaX

Einstök, sérhönnuð blanda í vatnsleysanlegri formúlu til að bæta bragð, áferð og í mörgum tilfellum frásog Omega-3.

Essent+ Premium

Auðmeltanleg mjúkhylki í úrvals blöndu af hreinni fiskiolíu og nákvæmu magni af R.E.V.O.O, ólífuþykkni og kakódufti.

BalanceOil+ Premium

Einstök blanda af sjálfbærri, hreinni fiskiolíu og R.E.V.O.O; okkar fyrsta flokks, einkaleyfisverndaða extra virgin ólífuolía.

R.E.V.O.O

Okkar fyrsta flokks, extra virgin ólífuolía úr snemmtíndum Koroneiki ólífum er einkaleyfisvarin og býður upp á 30 sinnum meiri andoxunarefni en hefðbundin ólífuolía.

Hvert er leyndarmálið á bak við framúrskarandi fiskiolíu? Hágæða ólífuolía.

BalanceOil+ Premium er haldið fersku og einstaklega öflugu með R.E.V.O.O, okkar eigin extra virgin ólífuolíu. Óviðjafnanlegt magn af andoxunarríkum pólýfenólum býður upp á einstaka vörn og frásog af Omega-3 fitusýrum.

Ferðalag þitt byrjar með Balance hugmyndinni

Taktu upplýsta ákvörðun út frá því hvað það er sem líkami þinn þarfnast núna. Uppgötvaðu einstaka fitusýrusamsetningu þína og styddu við nauðsynleg Omega-gildi þín á aðeins 120 dögum með sérsniðinni fæðubótaráætlun.

Taktu BalanceTest prófið okkar heima

Fyrsta fitusýruprófið veitir grunnlínumælingu á núverandi Omega-6:3 gildum þínum. Eftirfylgniprófin hjálpa þér að fylgjast með breytingum og veita þér skriflega sönnun fyrir því hvort fæðubótarefnaáætlunin þín sé að virka. 

Algengar spurningar

Já. BalanceTest prófið er hannað til að sýna fram á hvernig Zinzino BalanceOil+ getur haft áhrif á fitusýrumagn, þegar það er tekið samkvæmt ráðleggingum. Fyrsta prófið veitir upplýsingar um núverandi Omega fitusýruprófíl þinn og annað prófið gerir þér kleift að bera saman niðurstöður eftir að minnsta kosti 120 daga. Hin vísindalega vottaða blanda af hreinni fiskiolíu, extra virgin ólífuolíu úr snemmtíndum ólífum og náttúrulega upprunnu D3-vítamíni, er útbúin til að auka inntöku af Omega-3 fitusýrum og stuðla að og viðhalda jafnvægi á Omega-6:3 hlutfalli líkamans. Óháð, GMP-vottuð efnagreiningarstofa greinir á nafnlausan hátt, þurrblóðpróf fyrir ellefu mismunandi fitusýrur. Niðurstöður blóðprófa frá prófuðum löndum, sýna að hlutfall Omega-6:3 jafnvægis hjá fólki sem ekki tekur Omega-3 fæðubótarefni er í kringum 12:1 í Norður-Evrópu, 15:1 í Evrópu og 25:1 í Bandaríkjunum. Eftir 120 daga notkun á BalanceOil+, sýna margir einstaklingar hlutfall sem er nær 3:1.

Já. Við vinnum með Lýsi, rótgrónum framleiðanda fiskiolíu. Fiskiolían er eingöngu fengin með vottuðum fiskveiðum áður en hún er unnin af Lýsi á Íslandi. Þeir framkvæma ítarlegar prófanir á þungmálmum og hráefnum í fiskiolíu til að fylgja ströngum reglum ESB og tryggja hámarkshreinleika ásamt því að sjá til þess að gildin haldist í samræmi við öryggisstaðla. Þar sem höfin okkar verða fyrir meira álagi vegna mengunar, getur öll fiskiolía innihaldið snefilmagn af efnum eins og kvikasilfri og öðrum þungmálmum. Þessi umhverfismengunarefni eru talin oxunarefni og þau geta haft neikvæð áhrif á heilsu, þar sem þau stuðla að streitu eða álagi innan frumna og geta hugsanlega aukið hættu á sjúkdómum. Smáfiskar eru neðst í fæðukeðjunni og eiga það til að safna færri eiturefnum. Það eykur líkurnar á að fiskarnir séu hentugir sem uppspretta af Omega-3 fitusýrum, sem áfram gerir hreinsunarferli olíunnar mildara. Við mælum með að velja Omega-3 fæðubótarefni þar sem fiskiolían er vandlega hreinsuð úr þungmálmum og leifum efnasambanda eins og þalötum (e. phthalates). Ábyrgir framleiðendur birta þessar upplýsingar á skýran hátt á vörunni (vörumiða).

BalanceOil+ fæðubótarefnið okkar var eitt af fyrstu Omega-3 fæðubótarefnunum sem þróuð voru með skjalfestum prófunum frá þriðja aðila. Mörg hefðbundin Omega-fæðubótarefni á markaðnum sýna ekki fram á virka næringarefnaupptöku. Til að styðja við langtímanotkun, þarf fiskiolían að vera fersk og vernduð af andoxunarefnum sem eru náttúrulega til staðar í fiski. Pólýfenól úr snemmtíndum jómfrúarólífum eru andoxunarefnin sem líkjast þeim sem finnast í fiski og Zinzino var eitt af fyrstu vörumerkjunum til að bæta þessu innihaldsefni við Omega-3 fæðubótarefni. BalanceOil+ sameinar hreina fiskiolíu og extra virgin ólífuolíu með pólýfenólum til að aðstoða við oxunarjafnvægi og styðja við upptöku næringarefna. Niðurstaðan er Omegafæðubótarefni úr pólýfenólum sem er hannað til að líkjast náttúrulegri samsetningu feits fisks. BalanceTest prófið okkar veitir neytendum skjalfestar upplýsingar um fitusýrusamsetningu þeirra.
 
Meðal andoxunarefna plantna, eru það fenólsamböndin í ólífuolíu frá snemmtíndum ólífum, sem passa best við þá lípíðfasavirkni sem þarf til að ná ákveðnum stöðugleika í sjávaromega-3 fitusýrum, og Zinzino var eitt af fyrstu vörumerkjunum til að bæta þessu innihaldsefni við Omega-3 fæðubótarefni.
Niðurstöður BalanceTest prófsins sem sýna breytingar á hlutfalli Omega 6:3, geta veitt skjalfestar upplýsingar um fitusýrusniðið þitt. Öll fiskiolía mun að lokum þrána og missa gæði, þess vegna gegnir hreinsunarferlið mikilvægu hlutverki við að halda oxun í lágmarki. Til að varðveita gæði olíunnar, þarf að fylgjast vandlega með ferskleika hennar. Stöðugt oxunarferli hjálpar til við að viðhalda gæðum og virkni Omega-3 næringarefna. Að bæta við andoxunarefnum, er ein aðferð til að hægja á oxun í fiskiolíu, auka geymsluþol og bæta gæði. BalanceOil+ er búið til með náttúrulegum andoxunarefnum eins og blönduðum tókóferólum og extra virgin ólífuolíu úr snemmtíndum ólífum, þekktum fyrir pólýfenólin sín. Þessi lífvirku örnæringarefni hjálpa til við að halda Omega-3 fitusýrunum stöðugum og viðhalda gæðum þeirra til lengri tíma litið.
 
Omega-3 fitusýrur eins og EPA og DHA stuðla að eðlilegri starfsemi hjartans, en DHA stuðlar einnig að viðhaldi eðlilegrar heilastarfsemi og sjónar. Að bæta þessum næringarefnum inn í mataræðið í formi hágæða fæðubótarefna, aðstoðar því við þessa mikilvægu virkni og starfsemi líkamans.
 
 

Þegar Zinzino BalanceOil+ er notað samkvæmt ráðleggingum byggðum á niðurstöðum BalanceTest prófsins, benda rannsóknir vísindamanna okkar til mælanlegra breytinga á fitusýrusniði líkamans innan 120 daga, en á þeim tíma ná flestar frumur líkamans endurnýja sig. Mælt er með að gera prófið áður en byrjað er að nota BalanceOil+ til að ákvarða upphafshlutfallið og svo aftur eftir 120 daga til að bera saman niðurstöður og endurskoða neyslu ef þörf krefur.

Það eru um það bil tíu mismunandi Omega-3 fitusýrur í líkamanum og þrjár helstu eru ALA, EPA og DHA. EPA og DHA eru langar Omega-3 fitusýrur sem gegna mikilvægu hlutverki í líkamanum. Þær finnast aðallega í feitum fiski eins og laxi, makríl, sardínum og síld, og þess vegna eru fiskiolíur úr sjávarfangi svo ríkar af EPA og DHA. Þar sem fitusýrurnar tvær gegna örlítið mismunandi hlutverki getur hlutfallið á milli þeirra haft áhrif á hvernig þær leggja sitt af mörkum til heildarnæringar.
BalanceOil+ inniheldur 20:10 hlutfall af EPA og DHA. Omega-3 fitusýrur eins og EPA og DHA stuðla að eðlilegri starfsemi hjartans, en DHA stuðlar einnig að viðhaldi eðlilegrar heilastarfsemi og sjónar. Þessi samsetning inniheldur bæði EPA og DHA í magni sem er hannað til að styðja við daglega neyslu í samræmi við viðurkenndar næringarleiðbeiningar.

Zinzino Blog

Upplýsingar, fróðleikur og innblástur á sviði heilsu og vellíðanar.
(Sumar bloggfærslur eru aðeins í boði á ensku).