Prófaðu, ekki giska!
Heimaheilsuprófin okkar leiða í ljós og sýna svart á hvítu hvað þú þarft að gera til þess að búa til rútínu eða fæðubótarvenjur sem virka.

1,686,803 BalanceTest próf framkvæmd hingað til
Byggt á stærsta gagnagrunni heims fyrir prófanir á þurrblóðsýnum (dbs).
BalanceTest
Uppgötvaðu mikilvæga fitusýruhlutfallið þitt.
- Sex mismunandi heilsufarsmerki
BalanceTest
Uppgötvaðu mikilvæga fitusýruhlutfallið þitt.
- Sex mismunandi heilsufarsmerki
Þarmaheilsupróf
Fylgstu með þörmum þínum og efnaskiptum
- 5 mismunandi heilsufarsvísar
- Skoðar þarmastarfsemi og falin merki um ójafnvægi
- Fáðu gagnlegar upplýsingar til að sérsníða mataræði þitt og daglegar venjur
Þarmaheilsupróf
Fylgstu með þörmum þínum og efnaskiptum
- 5 mismunandi heilsufarsvísar
- Skoðar þarmastarfsemi og falin merki um ójafnvægi
- Fáðu gagnlegar upplýsingar til að sérsníða mataræði þitt og daglegar venjur
Vitamin D próf
Fylgstu með hinu mikilvæga D-vítamínmagni.
- Sérsniðnar ráðleggingar til að hámarka D-vítamínneyslu
Vitamin D próf
Fylgstu með hinu mikilvæga D-vítamínmagni.
- Sérsniðnar ráðleggingar til að hámarka D-vítamínneyslu
HbA1c próf
Mældu langtíma blóðsykursgildin þín núna.
- Blóðsykursstjórnun líkamans
- Lífstílsmat
- Sérsniðnar ráðleggingar um mataræði, athafnir og hreyfingu
HbA1c próf
Mældu langtíma blóðsykursgildin þín núna.
- Blóðsykursstjórnun líkamans
- Lífstílsmat
- Sérsniðnar ráðleggingar um mataræði, athafnir og hreyfingu
Prófin sýna hvers líkaminn þarfnast
Niðurstöður þínar fyrir og eftir meðferð sýna að fæðubótarefnin eru að fylla upp í næringarskortinn í líkama þínum.

Fyrsta prófið er til að athuga stöðuna
Grunnprófið setur því stefnuna á heilsufarsferðalaginu þínu og tryggir að fæðubótarefnaáætlun þín sé sniðin að þínum persónulegu næringarþörfum.
Annað próf er til að fylgjast með framvindu
Eftirfylgniprófið fylgist með viðbrögðum líkamans og gerir þér kleift að aðlaga skammtinn að breyttum lífsstíl.
Hvað er í hverju prófi fyrir þig?
Hlutlæg greining, framkvæmd í trúnaði
Nafnlausu blóðsýnin þín eru eingöngu greind af óháðri efnagreiningarstofu til að tryggja rétta meðhöndlun og óhlutdrægar niðurstöður.
Merkingarríkar og breytanlegar niðurstöður
Upplýsingarnar í blóðsýnunum þínum endurspegla svörun líkamans við mataræði þínu síðustu 120 daga og sýna nákvæmar niðurstöður um stöðuna í líkamanum.
Einstaklingsmiðaðar ráðleggingar
Þínar einstöku niðurstöður eru skoðaðar af vísinda- og næringarsérfræðingum okkar og mynda grunninn að sérsniðnum ráðleggingum um hvernig eigi að ná heilsumarkmiðum þínum.
Sannaður heilsufarslegur ávinningur
Upplýsingarnar úr prófinu gera þér kleift að taka stjórn á heilsuferðalaginu þínu með bætiefnunum okkar, en vörurnar eru bæði vísindalega og klínískt sannaðar til þess að loka þessu næringarbili.

Sönnun okkar á hugmyndinni
„Gættu þess að velja próf sem er framkvæmt af óháðum aðila og byggir á nákvæmri og vísindalegri greiningu eins og heilsupróf Zinzino. Þetta er hið fullkomna hlutlæga greiningartæki.“
Sérfræðingur í rannsóknum og vörustjóri Zinzino
Yfirmaður vöruþróunar
„Með því að tengja lífmerkin við þína einstaklingsbundnu heilsufarsstöðu færðu einstakar upplýsingar um fitusýruhlutfall og stöðu líkamans sem við munum nota til að ákvarða næringarráðleggingar sem eru sniðnar að þínum sérstöku þörfum.“
Stofnandi Balance hugmyndarinnar og BioActive Foods AS
„Zinzino er eina þekkta fæðubótarefnafyrirtækið sem notar blóðprófanir til að staðfesta vörur sínar af þriðja aðila og bjóða þannig upp á sannaðan ávinning skriflega.“
Forstjóri Vitas Analytical Services
Sem er leiðandi á sviði blóðdropaprófana á heimsvísu
Blóðsýnin þín eru meðhöndluð í fullum trúnaði, undir sjálfstæðri stjórn Vitas, GMP-vottaðs efnagreiningarfyrirtækis. Vitas er virtur samstarfsaðili Zinzino til margra ára, og hefur starfað með mörgum alþjóðlegum rannsóknarstofnunum, helstu sjúkrahúsum auk virtra háskóla um allan heim.

Virkar heilbrigðisáætlun þín?
Að vera með þína eigin fæðubótarrútínu er algerlega rökrétt. Að fá sönnun fyrir því að hún sé að virka ætti að vera það líka. Heilsuprófin okkar veita þér staðreyndirnar og fæðubótarefnin okkar eru lausnin. Það er prófmiðaða næringaráætlunin okkar.

Prófaðu fæðubótarefnin þín
97% okkar fá ekki nóg af omega-3 úr mataræðinu. Þetta hefur áhrif á ónæmiskerfið, heilann og hjartað. Við hjálpum þér að endurheimta það jafnvægi á aðeins 120 dögum og við munum sanna það skriflega. Þetta er Balance-hugmyndin okkar.

Evrópsk heilbrigðis- og öryggisvottun
Allur heilsuprófunarbúnaður okkar er CE-merktur. Þetta þýðir að prófið og allir íhlutir þess uppfylla grunnkröfur ESB um heilsu, umhverfi og öryggi og eru í samræmi við gildandi lög og reglugerðir.
Fleiri spurningar?
Heilsan okkar er dýnamísk. Allar breytingar á lífsstíl okkar, mataræði eða daglegum venjum geta haft áhrif á næringarupptöku okkar og hvernig við bregðumst við mat. Niðurstöður úr fyrsta prófinu gefa þér grunnupplýsingar um núverandi ástand þitt og innsýn í næringarjafnvægi þitt. Seinna prófið mælir framfarir þínar og þú færð prófið sent sérstaklega eftir fjóra mánuði. Þar sem það tekur frumur líkamans í kringum 120 daga að endurnýja sig er þetta kjörinn tími til að kanna viðbrögð líkamans við næringarefnunum og nýta tækifærið til að aðlaga inntökuna, ef lífsaðstæður þínar hafa breyst. Með því að fylgjast reglulega með því hvernig líkami þinn bregst við fæðubótarefnunum sem þú tekur, færðu fullvissu um að þú sért að styðja við heilsu þína og að vörurnar geti hjálpað þér á þeirri leið.
Já. Nákvæmni og vægi allra okkar nafnlausu og vísindalegu heimaheilsuprófa stenst ítrustu kröfur læknisfræðilegra rannsókna. Öll blóðsýni fá sérstaka meðferð þar sem þau eru greind á nafnlausan hátt af Vitas, sem er óháð GMP-vottuð rannsóknarstofa í Osló í Noregi, sem leigir út þjónustu sína til efnagreininga og er með 25 ára reynslu af því að framkvæma hágæða, sérsniðnar litskiljunargreiningar sem byggja á nýjustu þekkingu og tækni. Vitas nýtur viðurkenningar sem leiðandi aðili á sviði þurrblóðdropaprófa og á rætur að rekja til næringarfræðideildar Institute of Basic Medical Sciences við Háskólann í Osló, stærstu næringarfræðideildar í Evrópu. Fyrirtækið hefur einnig unnið með Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.
Þú getur tekið heilsuprófin okkar hvar og hvenær sem er. Þú þarft ekki að fasta. Þegar þú tekur prófið aftur, skaltu reyna að gera það við sömu aðstæður og í fyrra skiptið til að fá sem bestan samanburð. Það ætti aðeins að taka nokkrar mínútur að taka prófið og leiðbeiningarnar eru skýrar og einfaldar. Gættu þess að lesa þær vandlega frá upphafi til enda áður en þú byrjar. Veldu þann tíma sem hentar best til að taka heilsuprófið. Þvoðu hendurnar og veldu fingurgóm sem þú þrífur líka vel með meðfylgjandi sprittþurrku. Stingdu fingurinn með stungunálinni og láttu nokkra dropa af blóði leka á meðfylgjandi síupappír. Láttu blóðdropana þorna í 10 mínútur áður en þú lokar sýnaspjaldinu. Taktu ljósmynd af ID-prófnúmerinu þínu og skráðu það nafnlaust á netinu áður en þú sendir sýnið þitt. Til að fá frekari upplýsingar um blóðprufuferli Zinzino skaltu fara inn á zinzinotest.com.
Zinzino Blog
Upplýsingar, fróðleikur og innblástur á sviði heilsu og vellíðunar.