Skip to main content

 

Omega fæðubótarefni

Af hverju er erfitt að fá nóg af Omega-3?

 

Omega fæðubótarefni

Af hverju er erfitt að fá nóg af Omega-3?

Vestrænt mataræði er yfirleitt ríkt af Omega-6 fitusýrum en inniheldur lítið af Omega-3 sem hefur töluverð áhrif á líkamann. Yfir 6 milljarðar okkar ná ekki æskilegum skilyrðum.*

Image

Vísindalega sannað og prófað af þriðja aðila til að veita mælanleg áhrif á 120 dögum.

Kynntu þér BalanceOil+

Image

Einstaka formúlan okkar er búin til með öflugum Omega-3 fitusýrum sem stuðla að eðlilegri hjarta-, heila- og ónæmisstarfsemi.

Hvað er í BalanceOil+ sem gagnast þér?

Öflugt Omega fæðubótarefni með sjávarfitusýrum EPA og DHA í þeirra náttúrulega þríglýseríðformi.

Kaldpressuð, extra virgin ólífuolía með náttúrulegum andoxunarefnum til að hámarka upptöku í líkamanum.

Image

Í vökvaformi, hylkjum eða í vatnsleysanlegu formi. Engin gervilitarefni, gervibragðefni eða rotvarnarefni.

D-vítamín fengin á náttúrulegan hátt, til að styðja við eðlilegt ónæmiskerfi, bein og vöðvastarfsemi.

Útskýring á BalanceOil+

Okkar sérsniðna norska formúla

Til að vernda Omega-3 næringarefnin í ferlinu, frá fiski til flösku og svo líkama, blöndum við 60% hreinni, hágæða fiskiolíu við 40% úrvals extra virgin ólífuolíu og D-vítamín unnið á náttúrulegan hátt.

6.600 mg af fiskiolíu með einstöku 20/10 hlutfalli af EPA og DHA úr smáum, villtum sardínum, makríl og ansjósum - fengið með sjálfbærum hætti úr Kyrrahafi og Atlantshafi.

 

4.000 mg af úrvals extra virgin ólífuolíu úr snemmtíndum suður-evrópskum ólífum, rík af andoxunarefnum úr pólýfenólum.

 

20 µg af D3-vítamíni sem er fengið á náttúrulegan hátt úr sauðfjárull, auk andoxunarefna úr náttúrulega unnum tókóferólum úr mjög hreinsaðri eimingu sojabaunaolíu.

 

balanceoil-spec-labels.svg

Ekki er allt Omega-3 myndað eins

Omega-3 fitusýrur eru misjafnar að gæðum og innihaldi og oxun hefst um leið og fiskurinn er kominn upp úr sjónum. Að fá nægilegt magn af ferskum og öflugum Omega-3 fitusýrum fer eftir aldri okkar, þyngd, lífsstíl og hvaða fitusýrum við neytum.

Uppruni skiptir máli
Mikið af fiski sem við finnum í verslunum er eldisfiskur — þægilegur og hagkvæmur, en lágur í mikilvægum Omega-3 fitusýrum, EPA og DHA, sem við þurfum.

  • EPA tengist hjartaheilsu og ónæmiskerfinu
  • DHA er sérstaklega þekkt fyrir mikilvægi sitt í heilanum.

 

Stærðin skiptir líka máli
Stórir, magrir fiskar eins og þorskur geyma megnið af EPA og DHA í lifrinni, þar sem mengunarefni úr sjónum eiga til að safnast fyrir. Smáfiskar, sem veiddir eru villtir, geyma EPA og DHA í vefjum sínum. Þeir eru einnig neðar í fæðukeðjunni, með færri eiturefni.

  • Makríll: >> 2.200 mg af Omega-3/skammt
  • Sardínur: 800 mg/skammt
  • Lax: 1200 mg/skammt
  • Þorskur: 100 mg/skammt

Unnið á sjálfbæran hátt, auðmeltanleg innihaldsefni

Vandlega valin með hámarks ferskleika og næringarþéttleika að leiðarljósi, byggt á uppskeru á besta tíma og umhyggju fyrir plánetunni.

Prófað af þriðja aðila fyrir ferskleika, hreinleika og virkni

 Til að styrkja orðspor okkar sem leiðandi í hreinni, prófmiðaðri næringu, eru framúrskarandi gæði BalanceOil+ varanna okkar staðfest með virtum og alþjóðlega viðurkenndum vottunarstöðlum.

Við virðum framúrskarandi staðla í greininni

Við fylgjum ströngustu gæða- og starfsreglum og höfum eftirlit með allri fiskiolíuframleiðslunni til að vernda næringarefnin og skila hreinum, öflugum og stöðugum fæðubótarefnum sem þú getur treyst.

„Sérsniðin formúla okkar inniheldur einstakt hlutfall af EPA og DHA til að veita ráðlagðan dagskammt af Omega-3.“

 
Dr. Emmalee Gisslevik,
Yfirsérfræðingur í rannsóknum og þróun hjá Zinzino

Náttúrulega ferskt og bragðgott úrval

Veldu á milli auðmeltanlegs vökva, auðkyngdra hylkja, vatnsleysanlegrar formúlu og vegan valkosts.

BalanceOil Tutti Frutti

Barnvæna formúlan okkar með Tutti Frutti bragði, og ráðleggingum um skammta sem henta aldri.

Ferðalag þitt byrjar með Balance hugmyndinni

Taktu BalanceTest prófið til að sjá fitusýrusamsetninguna þína og byrjaðu að styðja við nauðsynleg Omega-gildi með BalanceOil+; vísindalega sannað að virki fyrir þig.

Taktu BalanceTest prófið okkar heima

Fyrsta fitusýruprófið er grunnmæling til að sýna núverandi Omega-6:3 gildin þín. Seinna eftirfylgniprófið veitir þér skriflega sönnun þess að fæðubótarefnin þín virki.

Algengar spurningar

Já. BalanceTest prófið er hannað til að sýna fram á hvernig Zinzino BalanceOil+ getur haft áhrif á fitusýrumagn, þegar það er tekið samkvæmt ráðleggingum. Fyrsta prófið veitir upplýsingar um núverandi Omega fitusýruprófíl þinn og annað prófið gerir þér kleift að bera saman niðurstöður eftir að minnsta kosti 120 daga. Hin vísindalega vottaða blanda af hreinni fiskiolíu, extra virgin ólífuolíu úr snemmtíndum ólífum og náttúrulega upprunnu D3-vítamíni, er útbúin til að auka inntöku af Omega-3 fitusýrum og stuðla að og viðhalda jafnvægi á Omega-6:3 hlutfalli líkamans. Óháð, GMP-vottuð efnagreiningarstofa greinir á nafnlausan hátt, þurrblóðpróf fyrir ellefu mismunandi fitusýrur. Niðurstöður blóðprófa frá prófuðum löndum, sýna að hlutfall Omega-6:3 jafnvægis hjá fólki sem ekki tekur Omega-3 fæðubótarefni er í kringum 12:1 í Norður-Evrópu, 15:1 í Evrópu og 25:1 í Bandaríkjunum. Eftir 120 daga notkun á BalanceOil+, sýna margir einstaklingar hlutfall sem er nær 3:1.

Já. Við vinnum með Lýsi, rótgrónum framleiðanda fiskiolíu. Fiskiolían er eingöngu fengin með vottuðum fiskveiðum áður en hún er unnin af Lýsi á Íslandi. Þeir framkvæma ítarlegar prófanir á þungmálmum og hráefnum í fiskiolíu til að fylgja ströngum reglum ESB og tryggja hámarkshreinleika ásamt því að sjá til þess að gildin haldist í samræmi við öryggisstaðla. Þar sem höfin okkar verða fyrir meira álagi vegna mengunar, getur öll fiskiolía innihaldið snefilmagn af efnum eins og kvikasilfri og öðrum þungmálmum. Þessi umhverfismengunarefni eru talin oxunarefni og þau geta haft neikvæð áhrif á heilsu, þar sem þau stuðla að streitu eða álagi innan frumna og geta hugsanlega aukið hættu á sjúkdómum. Smáfiskar eru neðst í fæðukeðjunni og eiga það til að safna færri eiturefnum. Það eykur líkurnar á að fiskarnir séu hentugir sem uppspretta af Omega-3 fitusýrum, sem áfram gerir hreinsunarferli olíunnar mildara. Við mælum með að velja Omega-3 fæðubótarefni þar sem fiskiolían er vandlega hreinsuð úr þungmálmum og leifum efnasambanda eins og þalötum (e. phthalates). Ábyrgir framleiðendur birta þessar upplýsingar á skýran hátt á vörunni (vörumiða).

BalanceOil+ fæðubótarefnið okkar var eitt af fyrstu Omega-3 fæðubótarefnunum sem þróuð voru með skjalfestum prófunum frá þriðja aðila. Mörg hefðbundin Omega-fæðubótarefni á markaðnum sýna ekki fram á virka næringarefnaupptöku. Til að styðja við langtímanotkun, þarf fiskiolían að vera fersk og vernduð af andoxunarefnum sem eru náttúrulega til staðar í fiski. Pólýfenól úr snemmtíndum jómfrúarólífum eru andoxunarefnin sem líkjast þeim sem finnast í fiski og Zinzino var eitt af fyrstu vörumerkjunum til að bæta þessu innihaldsefni við Omega-3 fæðubótarefni. BalanceOil+ sameinar hreina fiskiolíu og extra virgin ólífuolíu með pólýfenólum til að aðstoða við oxunarjafnvægi og styðja við upptöku næringarefna. Niðurstaðan er Omegafæðubótarefni úr pólýfenólum sem er hannað til að líkjast náttúrulegri samsetningu feits fisks. BalanceTest prófið okkar veitir neytendum skjalfestar upplýsingar um fitusýrusamsetningu þeirra.
 
Meðal andoxunarefna plantna, eru það fenólsamböndin í ólífuolíu frá snemmtíndum ólífum, sem passa best við þá lípíðfasavirkni sem þarf til að ná ákveðnum stöðugleika í sjávaromega-3 fitusýrum, og Zinzino var eitt af fyrstu vörumerkjunum til að bæta þessu innihaldsefni við Omega-3 fæðubótarefni.
Niðurstöður BalanceTest prófsins sem sýna breytingar á hlutfalli Omega 6:3, geta veitt skjalfestar upplýsingar um fitusýrusniðið þitt. Öll fiskiolía mun að lokum þrána og missa gæði, þess vegna gegnir hreinsunarferlið mikilvægu hlutverki við að halda oxun í lágmarki. Til að varðveita gæði olíunnar, þarf að fylgjast vandlega með ferskleika hennar. Stöðugt oxunarferli hjálpar til við að viðhalda gæðum og virkni Omega-3 næringarefna. Að bæta við andoxunarefnum, er ein aðferð til að hægja á oxun í fiskiolíu, auka geymsluþol og bæta gæði. BalanceOil+ er búið til með náttúrulegum andoxunarefnum eins og blönduðum tókóferólum og extra virgin ólífuolíu úr snemmtíndum ólífum, þekktum fyrir pólýfenólin sín. Þessi lífvirku örnæringarefni hjálpa til við að halda Omega-3 fitusýrunum stöðugum og viðhalda gæðum þeirra til lengri tíma litið.
 
Omega-3 fitusýrur eins og EPA og DHA stuðla að eðlilegri starfsemi hjartans, en DHA stuðlar einnig að viðhaldi eðlilegrar heilastarfsemi og sjónar. Að bæta þessum næringarefnum inn í mataræðið í formi hágæða fæðubótarefna, aðstoðar því við þessa mikilvægu virkni og starfsemi líkamans.
 
 

Þegar Zinzino BalanceOil+ er notað samkvæmt ráðleggingum byggðum á niðurstöðum BalanceTest prófsins, benda rannsóknir vísindamanna okkar til mælanlegra breytinga á fitusýrusniði líkamans innan 120 daga, en á þeim tíma ná flestar frumur líkamans endurnýja sig. Mælt er með að gera prófið áður en byrjað er að nota BalanceOil+ til að ákvarða upphafshlutfallið og svo aftur eftir 120 daga til að bera saman niðurstöður og endurskoða neyslu ef þörf krefur.

Það eru um það bil tíu mismunandi Omega-3 fitusýrur í líkamanum og þrjár helstu eru ALA, EPA og DHA. EPA og DHA eru langar Omega-3 fitusýrur sem gegna mikilvægu hlutverki í líkamanum. Þær finnast aðallega í feitum fiski eins og laxi, makríl, sardínum og síld, og þess vegna eru fiskiolíur úr sjávarfangi svo ríkar af EPA og DHA. Þar sem fitusýrurnar tvær gegna örlítið mismunandi hlutverki getur hlutfallið á milli þeirra haft áhrif á hvernig þær leggja sitt af mörkum til heildarnæringar.
BalanceOil+ inniheldur 20:10 hlutfall af EPA og DHA. Omega-3 fitusýrur eins og EPA og DHA stuðla að eðlilegri starfsemi hjartans, en DHA stuðlar einnig að viðhaldi eðlilegrar heilastarfsemi og sjónar. Þessi samsetning inniheldur bæði EPA og DHA í magni sem er hannað til að styðja við daglega neyslu í samræmi við viðurkenndar næringarleiðbeiningar.

Zinzino Blog

Upplýsingar, fróðleikur og innblástur á sviði heilsu og vellíðanar.
(Sumar bloggfærslur eru aðeins í boði á ensku).