Cart
Shopping cart
Heilsa • mánudagur, 27. mars 2023 • 3 min

Ávinningur af lýsi fyrir barnshafandi konur (og eftir fæðingu)

By Zinzino

Meðganga er sérstakur tími fyrir konur þar sem líkaminn býr sig undir að ala og fæða barn. Þess vegna breytast næringarþarfir nýrra mæðra líka. Þörf er á ýmsum vítamínum og steinefnum fyrir heilbrigða meðgöngu, þar á meðal fullnægjandi neyslu Omega-3 fitusýra. Þannig að ef þú ert að velta fyrir þér hvort þú getir tekið lýsi á meðgöngunni, þá er svarið já. 

Langar fjölómettaðar fitusýrur (LCP), sem eru byggingarefni fitunnar, hjálpa líkamanum að starfa eðlilega. LCP-sýrur eru mikilvægar fyrir bæði mæður og ungabörn. Omega-3 fitusýrur gegna hlutverki í þroska heilans1, taugakerfisins2 og sjónar3.

Varðandi hversu mikils magns Omega-3 skuli neyta á meðgöngu, þá ráðleggja næringarfræðingar að innbyrða tvo til þrjá skammta af feitfiski á viku (eins og makríl, síld, sardínur, lax). Þetta er til að tryggja lágmarksmagn sem nemur að minnsta kosti 450 mg af Omega-3 úr sjávarfangi á dag (þar af ættu að minnsta kosti 200 mg að vera í formi DHA). Ráðlagður lágmarksskammtur er breytilegur á heimsvísu og sum lönd hafa hærri lágmarksmörk, til dæmis er barnshafandi konum í Ástralíu ráðlagt að neyta að minnsta kosti 900 mg af Omega-3 úr sjávarfangi (þar af 800 mg í formi DHA fitu).

Barnshafandi konum sem borða ekki fisk reglulega er ráðlagt að taka fæðubótarefni með Omega-3 fitusýrum úr sjávarfangi. Fyrir grænmetisætur og grænkera eru til aðrar uppsprettur Omega-3 úr sjávarfangi eins og þang og þörungaolía.

Omega-3 fæðubótarefni, fyrir og eftir fæðingu

Hreint, hágæða Omega-3 lýsi er hollt fyrir líkama barnshafandi kvenna og á fyrstu stigum lífs ungbarna. Þar sem þessar nauðsynlegu fitusýrur eru ekki myndaðar af líkamanum er fæðubót nauðsynleg.

Mælt er með því að konur byrji að taka Omega-3 fæðubótarefni að minnsta kosti sex mánuðum fyrir getnað til að byggja upp þessa nauðsynlegu fitu í líkamanum*. Það er ekki síður mikilvægt eftir fæðingu, á meðan brjóstagjöf stendur.

BalanceOil+ er náttúrulegt Omega-3 fæðubótarefni sem er auðugt af ólífupólýfenólum og D3-vítamíni. Hún er örugg leið til að koma jafnvægi á EPA + DHA gildin og viðhalda góðu Omega-6:3 jafnvægi í líkamanum og vernda um leið frumurnar gegn oxun. BalanceOil+, sem er úrvalsblanda af olíum unnum úr villtum fiski og hágæða extra virgin ólífuolíu, stuðlar að eðlilegri starfsemi hjartans2, heilans1 og ónæmiskerfisins4.

Þetta er frábær uppspretta Omega-3, án þess að hætta sé á aðskotaefnum úr umhverfinu. BalanceOil+ er framleitt úr vottuðum sjálfbærum villtum fiski og er sameindaprófuð fyrir eiturefnum til að tryggja ferskleika og öryggi. Þessi hreinleiki er mikilvægur öllum, ekki síst barnshafandi konum.

Jákvæð áhrif Omega-3 fyrir konur og börn

Sannað er að tvær af Omega-3 fitusýrunum, EPA og DHA, viðhalda eðlilegri heilastarfsemi1. Fyrir barnshafandi og mjólkandi konur stuðlar DHA að eðlilegum heilaþroska fósturs og ungbarna á brjósti. EPA og DHA stuðla einnig að viðhaldi eðlilegra þríglýseríðgilda í blóði5, stöðugum blóðþrýstingi6og eðlilegri starfsemi hjartans2.

Að auki styður DHA við heilbrigða starfsemi augna3, sem er afar mikilvægt fyrir ungabörn. BalanceOil+ er náttúruleg leið til að njóta hinna frábæru jákvæðu áhrifa Omega-3 fitusýra.

Í ljósi þess að líkaminn getur ekki framleitt fjölómettaðar fitusýrur er BalanceOil+ nauðsynlegur þáttur í daglegri rútínu nýbakaðra mæðra. Og í ljósi þess hversu auðvelt er að neyta hennar (falinni í morgundjús eða safa) er BalanceOil+ þægileg leið til að mæta breyttum fæðuþörfum mæðra.

BalanceOil+ býður upp á 15+ EFSA-samþykkt jákvæð heilsufarsleg áhrif fyrir nýbakaðar mæður, ásamt því að koma jafnvægi á Omega-6:3 hlutfallið á gætilegan hátt. Þegar barnshafandi konur og konur með barn á brjósti hefja nýjan áfanga í lífinu sem er líkamlega og tilfinningalega krefjandi, getur BalanceOil+ hjálpað við að tryggja að líkaminn sé í sínu besta ásigkomulagi.

Omega-3 BalanceOil+ er lýsi í sérflokki og ef þú kemur því inn í morgunrútínuna þína muntu njóta góðs af því jafnvel þegar börnin eru vaxin úr grasi.

* Þessar fullyrðingar hafa ekki verið metnar af bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu (Food and Drug Administration). Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða koma í veg fyrir nokkurn sjúkdóm

1. DHA and EPA contribute to the maintenance of normal blood pressure

DHA og EPA stuðla að því að viðhalda eðlilegum blóðþrýstingi. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem veita 3 g dagskammt af EPA og DHA. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 3 g af EPA og DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um fæðubótarefni og/eða efnabætt matvæli skulu neytendur upplýstir um að ekki skuli taka inn meira en sem nemur 5 g af ráðlögðum dagskammti af EPA og DHA samanlagt.

2. DHA contributes to the maintenance of normal vision

DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegri sjón. Fullyrðinguna má aðeins að nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 40 mg af DHA í hverjum 100 g og fyrir hverjar 100 kkal. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af DHA. Inntaka dókósahexensýru (DHA) stuðlar að eðlilegum sjónþroska ungbarna upp að 12 mánaða aldri. Neytandinn skal upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 100 mg af DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um þurrmjólk fyrir ungbörn eldri en hálfs árs skulu a.m.k 0,3% af fitusýrum hennar vera DHA.

3. Vitamin D contributes to immune system

D-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Fullyrðinguna má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006

4. DHA and EPA contribute to the maintenance of normal blood

DHA og EPA stuðla að því að viðhalda eðlilegu þríglýseríðmagni í blóði. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda 2 g dagskammt af EPA og DHA. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 2 g af EPA og DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um fæðubótarefni og/eða efnabætt matvæli skulu neytendur einnig upplýstir um að ekki skuli taka inn meira en sem nemur 5 g af ráðlögðum dagskammti af EPA og DHA samanlagt. DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegum þríglýseríðgildum í blóði. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda 2 g dagskammt af DHA og innihalda DHA ásamt eikósapentaensýru (EPA). Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 2 g af DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um fæðubótarefni og/eða efnabætt matvæli skulu neytendur upplýstir um að ekki skuli taka inn meira en sem nemur 5 g af ráðlögðum dagskammti af EPA og DHA samanlagt.

5. DHA and EPA contribute to the normal function of the heart

EPA og DHA stuðla að eðlilegri hjartastarfsemi. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k það magn af EPA og DHA sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR Omega-3 FITUSÝRUR samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn skuli upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af EPA og DHA.

6. DHA contributes to the maintenance of normal brain

DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegri heilastarfsemi. Fullyrðinguna má aðeins að nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 40 mg af DHA í hverjum 100 g og fyrir hverjar 100 kkal. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af DHA. Inntaka dókósahexensýru (DHA) mæðra stuðlar að eðlilegum heilaþroska hjá fóstrum og börnum sem eru á brjósti. Veita skal barnshafandi konum og konum með börn á brjósti upplýsingar þess efnis að dagleg inntaka DHA þurfi að vera 200 mg til viðbótar við ráðlagðan dagskammt af Omega-3 fitusýrum fyrir fullorðna, þ.e. 250 mg af DHA og EPA. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 200 mg dagskammt af DHA.