Skip to main content

 

Omega fæðubótarefni

Af hverju er erfitt að fá nóg af Omega-3?

 

Omega fæðubótarefni

Af hverju er erfitt að fá nóg af Omega-3?

Vestrænt mataræði er yfirleitt ríkt af Omega-6 fitusýrum en inniheldur lítið af Omega-3 sem hefur töluverð áhrif á líkamann. Yfir 6 milljarðar okkar ná ekki æskilegum skilyrðum.*

Image

Vísindalega sannað og prófað af þriðja aðila til að veita mælanleg áhrif á 120 dögum.

Kynntu þér EssentOil+

Image

Einstaka formúlan okkar er búin til með öflugum Omega-3 fitusýrum sem stuðla að eðlilegri hjarta-, heila- og ónæmisstarfsemi.

Hvað er í BalanceOil+ sem gagnast þér?

Öflugt Omega fæðubótarefni með sjávarfitusýrum EPA og DHA í þeirra náttúrulega þríglýseríðformi.

Kaldpressuð, extra virgin ólífuolía með náttúrulegum andoxunarefnum til að hámarka upptöku í líkamanum.

Image

Í vökvaformi, hylkjum eða í vatnsleysanlegu formi. Engin gervilitarefni, gervibragðefni eða rotvarnarefni.

D-vítamín fengin á náttúrulegan hátt, til að styðja við eðlilegt ónæmiskerfi, bein og vöðvastarfsemi.

EssentOil+ útskýrt

Okkar sérsniðna norska formúla

Til að vernda Omega-3 næringarefnin í ferlinu, frá fiski til flösku og svo líkama, blöndum við 60% hreinni, hágæða fiskiolíu við 40% úrvals extra virgin ólífuolíu og D-vítamín unnið á náttúrulegan hátt.

6.600 mg af fiskiolíu með einstöku 20/10 hlutfalli af EPA og DHA úr smáum, villtum sardínum, makríl og ansjósum - fengið með sjálfbærum hætti úr Kyrrahafi og Atlantshafi.

 

4.000 mg af úrvals extra virgin ólífuolíu úr snemmtíndum suður-evrópskum ólífum, rík af andoxunarefnum úr pólýfenólum.

 

20 µg af D3-vítamíni sem er fengið á náttúrulegan hátt úr sauðfjárull, auk andoxunarefna úr náttúrulega unnum tókóferólum úr mjög hreinsaðri eimingu sojabaunaolíu.

 

balanceoil-spec-labels.svg

Ekki er allt Omega-3 myndað eins

Omega-3 fitusýrur eru misjafnar að gæðum og innihaldi og oxun hefst um leið og fiskurinn er kominn upp úr sjónum. Að fá nægilegt magn af ferskum og öflugum Omega-3 fitusýrum fer eftir aldri okkar, þyngd, lífsstíl og hvaða fitusýrum við neytum.

Uppruni skiptir máli
Mikið af fiski sem við finnum í verslunum er eldisfiskur — þægilegur og hagkvæmur, en lágur í mikilvægum Omega-3 fitusýrum, EPA og DHA, sem við þurfum.

  • EPA tengist hjartaheilsu og ónæmiskerfinu
  • DHA er sérstaklega þekkt fyrir mikilvægi sitt í heilanum.

 

Stærðin skiptir líka máli
Stórir, magrir fiskar eins og þorskur geyma megnið af EPA og DHA í lifrinni, þar sem mengunarefni úr sjónum eiga til að safnast fyrir. Smáfiskar, sem veiddir eru villtir, geyma EPA og DHA í vefjum sínum. Þeir eru einnig neðar í fæðukeðjunni, með færri eiturefni.

  • Makríll: >> 2.200 mg af Omega-3/skammt
  • Sardínur: 800 mg/skammt
  • Lax: 1200 mg/skammt
  • Þorskur: 100 mg/skammt

Unnið á sjálfbæran hátt, auðmeltanleg innihaldsefni

Vandlega valin með hámarks ferskleika og næringarþéttleika að leiðarljósi, byggt á uppskeru á besta tíma og umhyggju fyrir plánetunni.

Prófað af þriðja aðila fyrir ferskleika, hreinleika og virkni

 Til að styrkja orðspor okkar sem leiðandi í hreinni, prófmiðaðri næringu, eru framúrskarandi gæði EssentOil+ varanna okkar staðfest með virtum og alþjóðlega viðurkenndum vottunarstöðlum.

Við virðum framúrskarandi staðla í greininni

Við fylgjum ströngustu gæða- og starfsreglum og höfum eftirlit með allri fiskiolíuframleiðslunni til að vernda næringarefnin og skila hreinum, öflugum og stöðugum fæðubótarefnum sem þú getur treyst.

„Sérsniðin formúla okkar inniheldur einstakt hlutfall af EPA og DHA til að veita ráðlagðan dagskammt af Omega-3.“

 
Dr. Emmalee Gisslevik,
Yfirsérfræðingur í rannsóknum og þróun hjá Zinzino

Náttúrulega ferskt og bragðgott úrval

Veldu á milli auðmeltanlegs vökva, auðkyngdra hylkja, vatnsleysanlegrar formúlu og vegan valkosts.

Ferðalag þitt byrjar með Balance hugmyndinni

Taktu BalanceTest prófið til að sjá fitusýrusamsetninguna þína og byrjaðu að styðja við nauðsynleg Omega-gildi með BalanceOil+; vísindalega sannað að virki fyrir þig.

Taktu BalanceTest prófið okkar heima

Fyrsta fitusýruprófið er grunnmæling til að sýna núverandi Omega-6:3 gildin þín. Seinna eftirfylgniprófið veitir þér skriflega sönnun þess að fæðubótarefnin þín virki.

Algengar spurningar

Já. BalanceTest prófið er sönnun okkar fyrir því að Zinzino BalanceOil+ virkar á áhrifaríkan hátt þegar það er tekið rétt. Fyrsta prófið sýnir núverandi Omega-gildi þín og seinna prófið sýnir framfarirnar þegar þú hefur tekið fæðubótarefnið samkvæmt ráðleggingum í að minnsta kosti 120 daga. Nákvæm hlutföll af hreinni fiskiolíu, extra virgin ólífuolíu frá uppskeru og náttúrulega upprunnu D3-vítamíni aðlagar og viðheldur omega-3 magni í líkamanum, sem verður til þess að þú nærð æskilegu Omega-6:3 hlutfalli, í 3:1 eða minna. Óháð, GMP-vottuð efnagreiningarstofa mun greina á nafnlausan hátt, þurrblóðpróf fyrir ellefu mismunandi fitusýrur. Meðalhlutfall Omega-6:3 fitusýra hjá fólki sem ekki tekur Omega-3 fæðubótarefni er 12:1 í Norður-Evrópu, 15:1 í Evrópu og 25:1 í Bandaríkjunum. Eftir að hafa neytt BalanceOil+ í 120 daga, mælist meðalhlutfallið fyrir flesta undir 3:1.

Já. Við vinnum með Lýsi, sem er leiðandi fyrirtæki í heiminum í framleiðslu á fiskiolíu. Fiskiolían er eingöngu fengin með vottuðum fiskveiðum áður en hún er unnin á Íslandi af Lýsi. Þeir framkvæma ítarlegar prófanir á þungmálmum og hráefnum í fiskiolíu til að fylgja ströngum reglum ESB og tryggja hámarks hreinleika ásamt því að sjá til þess að gildin haldist undir öryggisstöðlum. Þar sem höfin okkar verða fyrir sífellt meiri mengun, mun öll fiskiolía innihalda eiturefni eins og kvikasilfur og aðra þungmálma. Þessi mengunar- og eiturefni teljast sem oxunarefni og þau eru skaðleg heilsu þinni, ráðast á heilbrigðar frumur og valda veikindum og sjúkdómum. Smáfiskar eru neðst í fæðukeðjunni og safna færri eiturefnum. Það eykur náttúrulegt öryggi þeirra og hreinleika, sem gerir fiskana að góðri uppsprettu af Omega-3, sem áfram gerir hreinsunarferli olíunnar mildara. Engu að síður ættir þú alltaf að velja Omega-3 fæðubótarefni þar sem hráfiskiolían er vottuð um að vera vandlega hreinsuð frá þungmálmum og laus við plastleifar sem kallast ftalöt (e. Phthalates). Ekki allir framleiðendur framkvæma þetta skref til að tryggja hreinleika og virkni, jafnvel þótt ftalöt innihaldi krabbameinsvaldandi efni og raski hormónum. Ef þeir hafa framkvæmt þetta hreinsunarferli, þá er það greinilega sýnt á flöskunni.

 

BalanceOil+ olían okkar var fyrst á markaðnum til að bjóða upp á heilsufarslegan ávinning sem þriðji aðili hafði sannað. Flest hefðbundin Omega-fæðubótarefni á markaðnum hafa lítil sem engin áhrif á líkamann þar sem Omega-3 næringarefnin í fiskiolíunni eru ekki nógu öflug til að frásögast í líkamanum. Til að bjóða upp á langtíma heilsufarslegan ávinning, þarf fiskiolían að vera vernduð með sömu öflugu andoxunarefnunum og finnast náttúrulega í fiski. Pólýfenól úr snemmtíndum jómfrúarólífum eru andoxunarefnin sem líkjast þeim sem finnast í fiski og Zinzino var eitt af fyrstu vörumerkjunum til að bæta þessu byltingarkennda innihaldsefni við Omega-3 fæðubótarefni. BalanceOil+ er blanda af hreinni fiskiolíu og extra virgin ólífuolíu, full af pólýfenólum til að takmarka oxun, hámarka frásog og tryggja að nauðsynlegar fitusýrur haldi frumuhimnum líkamans mjúkum og sveigjanlegum, til þess að næringarefnin eigi greiðari leið í gegnum frumurnar. Afurðin er pólýfenólríkt Omega fæðubótarefni sem líkist í raun meira feitum fiski en fiskiolíu. Og BalanceTest prófið okkar sannar það skriflega.

Meðal andoxunarefna plantna eru það fenólsamböndin í ólífuolíu, frá snemmuppskeru sem passa best við þá lípíðfasavirkni sem þarf til að ná ákveðnum stöðugleika í sjávaromega-3 fitusýrum, og Zinzino var eitt af fyrstu vörumerkjunum til að bæta þessu byltingarkennda innihaldsefni við Omega-3 fæðubótarefni.

Niðurstöður BalanceTest prófsins sem sýna breytingar á hlutfalli Omega 6:3, geta veitt skjalfestar upplýsingar um fitusýrusniðið þitt. Öll fiskiolía mun að lokum þrána og missa gæði, þess vegna gegnir hreinsunarferlið mikilvægu hlutverki við að halda oxun í lágmarki. Til að varðveita gæði olíunnar, þarf að fylgjast vandlega með ferskleika hennar. Stöðugt oxunarferli hjálpar til við að viðhalda gæðum og virkni Omega-3 næringarefna. Að bæta við andoxunarefnum, er ein aðferð til að hægja á oxun í fiskiolíu, auka geymsluþol og bæta gæði. BalanceOil+ er búið til með náttúrulegum andoxunarefnum eins og blönduðum tókóferólum og extra virgin ólífuolíu úr snemmtíndum ólífum, þekktum fyrir pólýfenólin sín. Þessi lífvirku örnæringarefni hjálpa til við að halda Omega-3 fitusýrunum stöðugum og viðhalda gæðum þeirra til lengri tíma litið.
 
Omega-3 fitusýrur eins og EPA og DHA stuðla að eðlilegri starfsemi hjartans, en DHA stuðlar einnig að viðhaldi eðlilegrar heilastarfsemi og sjónar. Að bæta þessum næringarefnum inn í mataræðið í formi hágæða fæðubótarefna, aðstoðar því við þessa mikilvægu virkni og starfsemi líkamans.
 
 

Rannsóknir vísindamanna okkar hafa sýnt fram á ávinning eftir 120 daga (sem er sá tími sem frumurnar í líkamanum þurfa til að endurnýjast) þegar Zinzino BalanceOil+ er notuð á réttan hátt á grundvelli niðurstaðna úr Balance Test prófinu. Mælt er með því að taka prófið áður en byrjað er á BalanceOil til að fá upplýsingar um fitusýruhlutfall líkamans og svo aftur eftir 120 daga til að fylgjast með framförum og stilla inntöku einstaklingsins.

Það eru um það bil tíu mismunandi Omega-3 fitusýrur, og þrjár helstu eru ALA, EPA og DHA. Mannslíkaminn er samsettur úr 37 billjónum frumna og allar eru þær háðar EPA og DHA til að starfa eðlilega. EPA tengist heilbrigði hjartans og liða og ónæmiskerfinu, en DHA er sérstaklega þekkt fyrir mikilvægi sitt í uppbyggingu heilans og heilbrigði augna. Þessar fitusýrur finnast aðallega í feitum fiski eins og laxi, makríl, sardínum og síld, og þess vegna eru fiskiolíur úr sjávarfangi svo ríkar af EPA og DHA. Þar sem þessar tvær fitusýrur gegna mismunandi hlutverkum í líkamanum getur hlutfallið á milli þeirra haft áhrif á hvernig þær styðja heilsu þína. Einstakt 20:10 hlutfall BalanceOil+ af EPA og DHA uppfyllir og fer fram úr ráðlögðum dagskammti alþjóðlegra matvæla- og heilbrigðisstofnana sem er um það bil 2 grömm á dag fyrir fullorðna. Margir vísindamenn og heilbrigðisstarfsmenn telja fiskiolíu með tvöfalt meira EPA en DHA vera holl og áhrifaríka blöndu fyrir almenna vellíðan, sérstaklega ef þú vilt styðja við bólgustjórnun, hjartaheilsu og efnaskiptajafnvægi. Varan veitir því bæði öflugan skammt af EPA en inniheldur samt sem áður mikið af DHA fyrir hugrænan og frumubundinn stuðning.

Zinzino Blog

Upplýsingar, fróðleikur og innblástur á sviði heilsu og vellíðanar.
(Sumar bloggfærslur eru aðeins í boði á ensku).