Cart
Shopping cart
Heilsa • þriðjudagur, 2. júní 2020 • 4 min

Omega-6:3 hlutfallið og hvers vegna það er nauðsynlegt svo heilsan verði sem best

By Zinzino

Nú á dögum er mataræði okkar öðruvísi en það var snemma á tuttugustu öldinni. Skyndibiti var ekki á matseðlinum og heldur ekki mikið unnar vörur sem innihalda hátt hlutfall af salti, sykri og Omega-6.

En jafnvel þótt þú eldir þinn eigin mat eru hráefnin því miður ekki af sömu gæðum og áður fyrr. Kjöt kemur aðallega frá dýrum sem eru fóðruð inni í hlöðu í stað þess að bíta gras á víðavangi og fiskur á borð við lax er alinn í lokuðum búrum og fóðraður með fiskimjöli í stað þess að nærast á þörungum í hafdjúpinu. Þetta hefur gríðarleg áhrif á næringargildi matvæla og þar með á frumur, vefi og líkama okkar.

Omega-6:3 hlutfallið

Við þurfum Omega-3 og Omega-6 í mataræði okkar en mikilvægast er að það sé í réttu hlutfalli – 90% fólks eiga það á hættu að vera í ójafnvægi. Þeir sem taka ekki Omega-3 fæðubótarefni geta verið í ójafnvægi með hlutfall sem er allt að 25:1.

Niðurstöðurnar sýna að við fáum ekki nógu mikið Omega-3 í mataræði okkar. Samkvæmt vísindarannsóknum er mælt með 3:1 hlutfalli milli nauðsynlegu fitusýranna Omega-6 og Omega-3.

BalanceTest Zinzino

BalanceTest Zinzino er auðvelt sjálfspróf til að greina fitusýrur í blóði þínu sem endurspeglar fituna í matnum sem þú borðar. BalanceTest er aðferð til að taka þornað blóðsýni (DVS) en það er vísindalega sannað að DBS er eins nákvæmt og blóðprufa úr bláæð þegar ætlunin er að greina fitusýrur.

Það eina sem þarf að gera er að fá nokkra blóðdropa úr fingurgómi á svokallaðan Whatman síupappír og það tekur innan við mínútu að ljúka sýnatökunni. VITAS Analytical Services** mun greina á nafnlausan hátt 11 fitusýrur*** sem saman eru um 98% fitusýra í blóðinu. Á meðal fitusýra sem finnast í blóði eru mettaðar, einómettaðar (Omega-9) og fjölómettaðar (Omega-6 og Omega-3) fitusýrur. Niðurstöðurnar eru síðan birtar, eftir um 20 daga, á vefsvæðinu zinzinotest.com þar sem upplýsingar eru veittar um Omega-6:3 Balance hlutfallið, Omega-3 magnið, verndarsnið (e. protection profile) fyrir fitusýrur og fleira.

Omega BalanceOil+ með pólýfenólum

BalanceOil+ er náttúrulegt fæðubótarefni með pólýfenólum sem stuðlar að Omega jafnvægi og er auðugt af ólífupólýfenólum, Omega-3 og D3-vítamíni. Varan er örugg leið til að stilla og viðhalda jafnvægi á EPA + DHA-gildum og Omega-6:3 Balance hlutfalli líkamans og vernda um leið frumurnar gegn oxun.6 Hún inniheldur einstaka blöndu af olíum sem unnar eru úr villtum smáfiski og foruppskeru hágæða jómfrúarólífuolíu.

Náttúruleg innihaldsefni

Fiskolían í BalanceOil+ frá Zinzino er aðallega fengin úr skammlífum, smáum uppsjávarfiski á borð við sardínur og ansjósur og fiskolíurnar eru fengnar úr heilum, óunnum fiski.

Við notum kaldpressaða hágæða jómfrúarólífuolíu. Spænsku Picual-ólífurnar urðu fyrir valinu þar sem þær eru auðugar af Omega-9 og búa yfir mjög miklu magni andoxunarefna.

Ólífurnar eru af foruppskerugæðum og í vinnsluferlinu eru steinarnir fjarlægðir og eingöngu ávextirnir eru kaldpressaðir sem skilar sér í hágæða jómfrúarólífuolíu sem er auðug af Omega-9 (olíusýru) með mikið magn andoxunarefna er kallast pólýfenólar (yfir 750 mg/kg5) sem bæði hafa fjölmarga jákvæða eiginleika15. Pólýfenólarnir verja BalanceOil+ í flöskunni og það sem er enn mikilvægara, frumur þínar líka6.

BalanceOil+ inniheldur D3-vítamín. Við notum náttúruleg D3-vítamín (kólekalsíferól) gerð úr lanólíni. Lanólín er náttúruleg fita sem er að finna í ull. D3-vítamínið er unnið úr lanólíni með því að leysa upp D3-vítamín forefni úr lanólíninu. Síðan er því breytt á efnafræðilegan hátt og það virkjað með því að setja það í útfjólublátt (UV) ljós. Efnaferlið er sambærilegt við það ferli sem verður í húð manna þegar hún framleiðir D3-vítamín.

BalanceOil+ vörurnar okkar innihalda einnig aðeins náttúruleg bragðefni

omega-6-3-ratio.png

Mikilvæg jákvæð áhrif BalanceOil+ frá Zinzino

  • Stuðlar að eðlilegri starfsemi heilans þar sem1 dagskammtur inniheldur 700 mg af DHA
  • Stuðlar að eðlilegri hjartastarfsemi þar sem2 dagskammtur inniheldur 1300 mg af EPA og 700 mg af DHA
  • Stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins þar sem3 dagskammtur inniheldur 20 µg af D3-vítamíni
  • Hjálpar til við að viðhalda réttu magni af EPA og DHA í líkamanum
  • Hjálpar til við að viðhalda réttu Omega-6:3 hlutfalli í líkamanum
  • Hjálpar til við að viðhalda réttu magni af pólýfenólum í líkamanum til að verja blóðfituefnin gegn oxunarálagi6
  • Styður við heilbrigða og eðlilega starfsemi augna þar sem það inniheldur 700 mg af DHA7
  • Stuðlar að eðlilegum beinum11, vöðvavirkni12, eðlilegum tönnum13 og frumuskiptingu14 þar sem dagskammtur inniheldur 20 µg af D3-vítamíni
  • Hjálpar til við að viðhalda eðlilegu þríglýseríðmagni í blóðinu8, eðlilegum blóðþrýstingi9 og eðlilegu kalsíummagni í blóði10.

Þegar það hefur fylgt persónumiðaðri heilsuáætlun okkar með BalanceOil+ í yfir 4 mánuði, prófað sig aftur og fengið að vita nýju gildin, hefur 95% fólks sem tekur Balance vörur frá Zinzino náð hlutfalli sem er nær 3:1 eftir 120 daga.

* Þessar fullyrðingar hafa ekki verið metnar af bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu (Food and Drug Administration). Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða koma í veg fyrir nokkurn sjúkdóm.

**Vitas er GMP vottuð rannsóknarstofa sem leigir út þjónustu sína til efnagreininga og er með 20 ára reynslu af því að framkvæma litskiljunargreiningar sem byggja á nýjustu þekkingu og tækni.

*** Fitusýrurnar 11 eru: Palmitínsýra(PA), sterínsýra(SA), olíusýra(OA), línólsýra(LA), alfalínólensýra(ALA), gammalínólensýra(GLA), díhómógammalínólensýra(DHGLA), arakídónsýra(AA), eikósapentensýra(EPA), dókósapentensýra(DPA), dókósahexanósýra(DHA).

1. VITAS is a GMP-certified chemical analysis contract lab

VITAS er GMP vottuð rannsóknarstofa sem leigir út þjónustu sína til efnagreininga og er með 20 ára reynslu af því að framkvæma litskiljunargreiningar sem byggja á nýjustu þekkingu og tækni.

2. The 11 fatty acids are:

Fitusýrurnar 11 eru: Palmitínsýra (PA), sterínsýra (SA), olíusýra (OA), línólsýra(LA), alfalínólensýra (ALA), gammalínólensýra (GLA), díhómógammalínólensýra (DHGLA), arakídónsýra (AA), eikósapentensýra (EPA), dókósapentensýra (DPA), dókósahexanósýra (DHA).

3. Fullyrðingin um að í fæðu sé mikið af trefjum

Fullyrðingin um að í fæðu sé mikið af trefjum og allar fullyrðingar sem hafa sennilega sömu merkingu fyrir neytandann, má aðeins setja fram þegar varan inniheldur að minnsta kosti 6 g af trefjum í hverjum 100 g eða að minnsta kosti 3 g af trefjum í hverjum 100 kkal.

4. Olive oil polyphenols

Pólýfenólar í ólífuolíu stuðla að verndun fituefna í blóðinu gegn oxunarálagi: Að skipta mettaðri fitu í mataræði út fyrir ómettaða fitu stuðlar að viðhaldi eðlilegra kólesteról-gilda í blóði. Olíusýra er ómettuð fita. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um ólífuolíu sem inniheldur a.m.k. 5 mg af hýdroxýtýrósóli og afleiðum þess (þ.e. ólevrópein efnasambönd og týrósól) í hverjum 20 g af ólífuolíu. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 20 g af ólífuolíu.

5. Oleic acid

Olíusýra (Omega-9) er ómettuð fita. Að neyta ómettaðrar fitu í stað mettaðrar fitu stuðlar að því að viðhalda eðlilegum kólesterólgildum í blóði.

6. The extra virgin oil used in BalanceOil+

Hágæða jómfrúarólífuolían sem notuð er í BalanceOil+ er fengin úr kaldpressuðum Picual-ólífum sem eru sérvaldar með tilliti til þess að þær innihaldi mikið magn pólýfenóla (yfir 750 mg/kg). Greint og vottað við uppruna.

7. DHA contributes to the maintenance of normal brain

DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegri heilastarfsemi. Fullyrðinguna má aðeins að nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 40 mg af DHA í hverjum 100 g og fyrir hverjar 100 kkal. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af DHA. Inntaka dókósahexensýru (DHA) mæðra stuðlar að eðlilegum heilaþroska hjá fóstrum og börnum sem eru á brjósti. Veita skal barnshafandi konum og konum með börn á brjósti upplýsingar þess efnis að dagleg inntaka DHA þurfi að vera 200 mg til viðbótar við ráðlagðan dagskammt af Omega-3 fitusýrum fyrir fullorðna, þ.e. 250 mg af DHA og EPA. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 200 mg dagskammt af DHA.

8. DHA and EPA contribute to the normal function of the heart

EPA og DHA stuðla að eðlilegri hjartastarfsemi. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k það magn af EPA og DHA sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR Omega-3 FITUSÝRUR samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn skuli upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af EPA og DHA.

9. Vitamin D contributes to immune system

D-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Fullyrðinguna má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006

10. DHA contributes to the maintenance of normal vision

DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegri sjón. Fullyrðinguna má aðeins að nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 40 mg af DHA í hverjum 100 g og fyrir hverjar 100 kkal. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af DHA. Inntaka dókósahexensýru (DHA) stuðlar að eðlilegum sjónþroska ungbarna upp að 12 mánaða aldri. Neytandinn skal upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 100 mg af DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um þurrmjólk fyrir ungbörn eldri en hálfs árs skulu a.m.k 0,3% af fitusýrum hennar vera DHA.

11. Vitamin D normal bones

D-vítamín stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.

12. Vitamin D normal muscle function

D-vítamín stuðlar að viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfsemi. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.

13. Vitamin D normal teeth

D-vítamín stuðlar að viðhaldi eðlilegrar tannheilsu. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.

14. Vitamin D cell division

D-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki í frumuskiptingarferlinu. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.

15. DHA and EPA contribute to the maintenance of normal blood pressure

DHA og EPA stuðla að því að viðhalda eðlilegum blóðþrýstingi. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem veita 3 g dagskammt af EPA og DHA. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 3 g af EPA og DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um fæðubótarefni og/eða efnabætt matvæli skulu neytendur upplýstir um að ekki skuli taka inn meira en sem nemur 5 g af ráðlögðum dagskammti af EPA og DHA samanlagt.

16. DHA and EPA contribute to the maintenance of normal blood

DHA og EPA stuðla að því að viðhalda eðlilegu þríglýseríðmagni í blóði. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda 2 g dagskammt af EPA og DHA. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 2 g af EPA og DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um fæðubótarefni og/eða efnabætt matvæli skulu neytendur einnig upplýstir um að ekki skuli taka inn meira en sem nemur 5 g af ráðlögðum dagskammti af EPA og DHA samanlagt. DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegum þríglýseríðgildum í blóði. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda 2 g dagskammt af DHA og innihalda DHA ásamt eikósapentaensýru (EPA). Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 2 g af DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um fæðubótarefni og/eða efnabætt matvæli skulu neytendur upplýstir um að ekki skuli taka inn meira en sem nemur 5 g af ráðlögðum dagskammti af EPA og DHA samanlagt.

17. Vitamin D calcium levels

D-vítamín stuðlar að eðlilegu kalsíummagni í blóði. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.