Cart
Shopping cart
Heilsa • þriðjudagur, 2. júní 2020 • 3 min

Jákvæð heilsufarsleg áhrif Polyphenol Omega Balance fæðubótarefnis

By Zinzino

Við notum ekki alltaf næringu til að kljást við heilsufarsvandamál, en það sem við setjum á matardiskinn hefur töluvert að segja um heilsu okkar. Og eitt sérstaklega mikilvægt næringarefni stuðlar að góðri líkamlegri og andlegri heilsu: Omega-3.

Já, nauðsynlega fitusýran sem er að finna í ýmsum feitfiski.

Líkamar okkar geta ekki framleitt þessar nauðsynlegu sýrur og flestir neyta þeirra ekki í nægu magni sem er ástæða þess að við þurfum tvíhliða nálgun er byggir á notkun fæðubótarefnis sem er auðugt af Omega-3 pólýfenólum.

Mikilvægi EPA og DHA Omega-3-fitusýra.

Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) hefur útbúið lista yfir viðurkenndar fullyrðingar um jákvæð áhrif Omega-3 fitusýra, D-vítamíns, og ólífuolíu. DHA og EPA eru tvær mikilvægar gerðir Omega-3 fitusýra, og þær er báðar að finna í BalanceOil+.

DHA hjálpar við að viðhalda eðlilegri heilastarfsemi1 og styður við sjón7, miðað við 250mg dagskammt. EPA og DHA stuðla að eðlilegri hjartastarfsemi ef dagskammtur er 250mg2. Eðlilegum blóðþrýstingi er viðhaldið með 3g dagskammti9 og eðlilegu 2g þríglýseríðmagni8.

Fyrir barnshafandi konur er gagnlegt að taka 450mg af DHA á dag til að stuðla að eðlilegum heilaþroska fóstursins (og ungbarna á brjósti)1 og 100mg dagskammtur getur stuðlað að eðlilegum sjónþroska fram til 12 mánaða aldurs7.

Hvort sem um ræðir heilbrigða hjarta- og vitsmunastarfsemi eða stuðning við sjón og fósturþroska eru Omega-3 fitusýrur nauðsynlegar fyrir alla aldurshópa.

EPA og DHA Omega-3 fitusýrurnar sem er að finna í BalanceOil+ vörunni okkar eru fengnar úr hágæða villtum sardínum, ansjósum og makríl. Fiskolíurnar eru ekki unnar fyrr en þær hafa undirgengist hreinsunarferli, eins og gildir um allar fiskolíur.

Pólýfenólar + Omega-3 fitusýrur.

Ólífuolía sem er auðug af pólýfenólum eykur upptöku Omega-3 fitusýra. Pólýfenólar í ólífuolíu eru einnig öflug andoxunarefni sem hafa margvísleg jákvæð áhrif, t.d. með því að verja blóðfituefni frá oxunarálagi6.

Afar mikilvægt er að velja vörur sem nota kaldpressaða hágæða jómfrúarólífuolíu (e. extra virgin olive oil). Við notum Picual gerð sem inniheldur mikið magn pólýfenóla og foruppskerum hana til að ná enn meira magni úr henni. Hágæða jómfrúarferlið gefur okkur fullkomna olíu með öllum innihaldsefnunum óskertum.

Vísindamenn Zinzino hafa þróað BalanceOil+ sem blöndu af Omega-3 með réttu magni af ólífuolíu sem veitir Omega-9 og andoxunarefni í mjög miklu magni.

Þessi blanda Omega-3 og pólýfenóla gerir þér kleift að fínstilla og viðhalda jafnvægi Omega-3 í líkamanum með öruggum hætti til að ná ákjósanlegu Omega-6:3 hlutfalli sem er 3:1 eða lægra á 120 dögum.

Jákvæð áhrif D-vítamíns.

Til viðbótar við jákvæða eiginleika Omega-3 styður D-vítamínið í BalanceOil einnig við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins3, vöðvastarfsemi12, beinabyggingu11, frumuskiptingu14, og eðlilegt kalsíummagn í blóði10. Við notum náttúrulegt D-vítamín, unnið úr lanólín – fitu sem fyrirfinnst í ull sem hefur þann eiginleika að þegar hún er virkjuð með útfjólubláu ljósi hefst ferli sem er sambærilegt ferlinu þegar D-vítamín er framleitt úr sólarljósi sem skín á húðina.

BalanceOil+ er eins náttúruleg og hugsast getur. Hún er úrvalsblanda af náttúrulegum olíum sem hjálpar þér að koma á jafnvægi í líkamanum og hefur jákvæð heilsufarsleg áhrif frá toppi til táar. Óhætt er að segja að hún eigi enga sína líka.

Afli dagsins.

Fylgdu tvíhliða nálgun sem byggir á góðri næringu og Omega-3 pólýfenól fæðubótarefni til að ná Omega-3 gildum sem stuðla að góðri heilsu. Fylgdu heilsusamlegu Miðjarðarhafsmataræði þar sem unnum mat er haldið í lágmarki og notaðu BalanceOil+ til að ná hlutfalli þínu nær 3:1.

Til að vita hver staðan þín er, notaðu Balance Test frá Zinzino, og notaðu síðan Balance vörur til að stilla hlutfallið þitt smám saman af, innan 120 daga.

Það hefur aldrei verið jafn auðvelt að jafnvægisstilla líkamann.

* Þessar fullyrðingar hafa ekki verið metnar af bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu (Food and Drug Administration). Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða koma í veg fyrir nokkurn sjúkdóm.

1. DHA contributes to the maintenance of normal brain

DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegri heilastarfsemi. Fullyrðinguna má aðeins að nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 40 mg af DHA í hverjum 100 g og fyrir hverjar 100 kkal. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af DHA. Inntaka dókósahexensýru (DHA) mæðra stuðlar að eðlilegum heilaþroska hjá fóstrum og börnum sem eru á brjósti. Veita skal barnshafandi konum og konum með börn á brjósti upplýsingar þess efnis að dagleg inntaka DHA þurfi að vera 200 mg til viðbótar við ráðlagðan dagskammt af Omega-3 fitusýrum fyrir fullorðna, þ.e. 250 mg af DHA og EPA. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 200 mg dagskammt af DHA.

2. DHA contributes to the maintenance of normal vision

DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegri sjón. Fullyrðinguna má aðeins að nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 40 mg af DHA í hverjum 100 g og fyrir hverjar 100 kkal. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af DHA. Inntaka dókósahexensýru (DHA) stuðlar að eðlilegum sjónþroska ungbarna upp að 12 mánaða aldri. Neytandinn skal upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 100 mg af DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um þurrmjólk fyrir ungbörn eldri en hálfs árs skulu a.m.k 0,3% af fitusýrum hennar vera DHA.

3. DHA and EPA contribute to the normal function of the heart

EPA og DHA stuðla að eðlilegri hjartastarfsemi. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k það magn af EPA og DHA sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR Omega-3 FITUSÝRUR samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn skuli upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af EPA og DHA.

4. DHA and EPA contribute to the maintenance of normal blood

DHA og EPA stuðla að því að viðhalda eðlilegu þríglýseríðmagni í blóði. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda 2 g dagskammt af EPA og DHA. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 2 g af EPA og DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um fæðubótarefni og/eða efnabætt matvæli skulu neytendur einnig upplýstir um að ekki skuli taka inn meira en sem nemur 5 g af ráðlögðum dagskammti af EPA og DHA samanlagt. DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegum þríglýseríðgildum í blóði. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda 2 g dagskammt af DHA og innihalda DHA ásamt eikósapentaensýru (EPA). Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 2 g af DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um fæðubótarefni og/eða efnabætt matvæli skulu neytendur upplýstir um að ekki skuli taka inn meira en sem nemur 5 g af ráðlögðum dagskammti af EPA og DHA samanlagt.

5. DHA and EPA contribute to the maintenance of normal blood pressure

DHA og EPA stuðla að því að viðhalda eðlilegum blóðþrýstingi. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem veita 3 g dagskammt af EPA og DHA. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 3 g af EPA og DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um fæðubótarefni og/eða efnabætt matvæli skulu neytendur upplýstir um að ekki skuli taka inn meira en sem nemur 5 g af ráðlögðum dagskammti af EPA og DHA samanlagt.

6. Olive oil polyphenols

Pólýfenólar í ólífuolíu stuðla að verndun fituefna í blóðinu gegn oxunarálagi: Að skipta mettaðri fitu í mataræði út fyrir ómettaða fitu stuðlar að viðhaldi eðlilegra kólesteról-gilda í blóði. Olíusýra er ómettuð fita. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um ólífuolíu sem inniheldur a.m.k. 5 mg af hýdroxýtýrósóli og afleiðum þess (þ.e. ólevrópein efnasambönd og týrósól) í hverjum 20 g af ólífuolíu. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 20 g af ólífuolíu.

7. Vitamin D contributes to immune system

D-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Fullyrðinguna má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006

8. Vitamin D normal muscle function

D-vítamín stuðlar að viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfsemi. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.

9. Vitamin D normal bones

D-vítamín stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.

10. Vitamin D cell division

D-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki í frumuskiptingarferlinu. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.

11. Vitamin D calcium levels

D-vítamín stuðlar að eðlilegu kalsíummagni í blóði. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.