Skip to main content

 

 

Boozt fyrir innri ljóma

Fáðu aftur heilbrigða og geislandi húð með því að nota fljótandi sjávarkollagen með úrvals næringarefnum.

 

 

Boozt fyrir innri ljóma

Fáðu aftur heilbrigða og geislandi húð með því að nota fljótandi sjávarkollagen með úrvals næringarefnum.

Fegurðin kemur ekki aðeins að innan

Húðin verður sterk og stinn þegar hún er nærð að innan. Ljóminn mun sjást.

Húðin er fyrsta varnarlínan

Hún er stærsta líffærið og hana verður að næra að innan til að halda heilbrigðri, sterkri og geislandi. Hefðbundin húðkrem geta aðeins veitt húðinni takmarkaða meðhöndlun. 

Auktu kollagenmagn þitt

Á sextugsaldri höfum við glatað 1/3 af náttúrulegu kollageni. Fljótandi sjávarkollagen getur hjálpað þér að byrja að endurnýja þurra, lafandi og viðkvæma húð.

Hún verður viðkvæmari með aldrinum

80% húðarinnar er úr kollageni. Það heldur húðinni okkar, hári, nöglum, vöðvum og liðum, bæði sterkum og öflugum. En við missum það hratt. Um 1% á ári frá þrítugsaldri.

Kynntu þér Collagen Boozt - Hágæða húðvöru frá Noregi

Image

Fljótandi sjávarkollagenskot með hágæðablöndu af völdum næringarefnum, þar á meðal C-vítamíni, bíótíni og sinki, sem vinna að innan frá til að endurbyggja slétta, stinna og geislandi húð. Hárið þitt, neglur, vöðvar, liðir og þarmar munu líka þakka þér fyrir!

What’s in Collagen Boozt X for you?

Styddu við náttúrulega kollagenframleiðslu líkamans á 10 dögum

Nærðu stinna og fallega húð með unglegri útgeislun sem endist

Image

Fáðu raka í húðina til að öðlast stinnt og hressandi útlit

Komdu jafnvægi á fjölbreytta þarmaflóru og eðlilega meltingarstarfsemi með bætibakteríuörvandi trefjum

Varan í stuttu máli

Úr úrvalsnæringarefnum úr sjó

8 gr fljótandi sjávarkollagen úr fiski veiddum á Norðurslóðum fyrir stinna og geislandi húð

120 mg rakagefandi hýalúrónsýra sem gefur strax fyllingu og endurnýjun húðar

Bætibakteríuörvandi trefjar (e. prebiotic fiber) úr kaffifífilsrót

Bætibakteríuörvandi efni (e. postbiotics) úr mjólkursýrugerlum

C-vítamín og 7 önnur bætiefni til að stuðla að kollagenframleiðslu

“All too often, people adopt a mono approach to enhance skin health. The skin is the largest organ of our body, existing in synergy with every aspect of our ecosystem. This is a multi-faceted product specifically designed to address the complexity of human health.”

Dr. Colin Robertson
Scientific research specialist and Zinzino Chief Product Officer

Complement with Omega-3 for whole-body effects

Combine Collagen Boozt X with BalanceOil+ to make sure you fuel your body with all essential nutrients that support heart, brain and immune function.

Happy gut, healthy skin

If your gut is in balance, so is your skin. ZinoBiotic+ is a perfect match to keep your gut thriving with a tailored blend of eight natural sources of prebiotic fibers, including oat grain fiber, resistant starches and beta-glucans.


Sýndu jafnvægið þitt

Settu punktinn yfir i-ið og bættu Skin Serum við heildrænu heilsurútínuna þína. Styður utanfrumubandvefinn með það að markmiði að endurlífga og sýna heilbrigða og geislandi húð.


Sýndu jafnvægið þitt

Settu punktinn yfir i-ið og bættu Skin Serum við heildrænu heilsurútínuna þína. Styður utanfrumubandvefinn með það að markmiði að endurlífga og sýna heilbrigða og geislandi húð.

Algengar spurningar

Kollagen er eitt algengasta próteinið (u.þ.b. 30% af heildarmagni próteina) í mannslíkamanum. Það myndar stóran hluta húðarinnar og er mikilvæg byggingareining fyrir húð, hár, neglur, bein, liðbönd og sinar. Kollagen stuðlar að hæfni líkamans til að hreyfa sig, beygja sig og teygja sig. Þegar við eldumst framleiðum við minna af kollageni og það verður erfiðara fyrir líkamann að endurnýja það. Þegar við náum tvítugsaldri, byrjum við að missa allt að 1% af náttúrulegu kollageni líkamans á hverju ári og þegar við náum fimmtugsaldri, er mögulegt að við höfum tapað allt að þriðjungi þess. Þessi hægagangur getur leitt til sýnilegra breytinga eins og minni teygjanleika húðarinnar og hrukkna, sem og hægari bata eftir meiðsli.

Rannsóknir hafa sýnt að markviss næring gegnir hlutverki í að styðja við kollagenframleiðslu og að taka kollagenuppbót getur stuðlað að þessu. Kollagen er mikilvægt byggingarprótein sem veitir húðinni teygjanleika og styrkleika fyrir hár og neglur. Það hjálpar líkamanum að viðhalda sveigjanleika í vefjum eins og húð, liðböndum og sinum. Með aldrinum minnkar náttúruleg framleiðsla á kollageni, sem getur leitt til sýnilegra breytinga eins og minni teygjanleika húðarinnar og hægari bata eftir meiðsli. Næringarefni, líkt og C-vítamín, leggja sitt af mörkum við eðlilega myndun kollagens, sem stuðlar áfram að eðlilegri starfsemi brjósks, beina, tanna, góma, æðar og húðar.

Collagen Boozt er daglegt fæðubótarefni, vandlega samsett vara til að mæta kollagenþörfum þínum. Rannsóknir okkar sýna að það tekur um það bil 10 daga að byrja að endurheimta tapað kollagen í líkamanum og styðja við náttúrulega kollagenframleiðslu líkamans. Það er alveg í lagi að halda áfram að taka fæðubótarefnið daglega þegar dagarnir 10 eru liðnir, en vegna þess að styrkur lykilefnanna tveggja er mikill, þarftu að gæta þess að neyta ekki annarra vara með kollageni og hýalúrónsýru á sama tíma.

Mælt er með að einstaklingar 21 ára og eldri taki vöruna. Hafðu í huga að vörunni er ekki ætlað að koma í stað jafnvægis og fjölbreytts mataræðis, meðhöndla, lækna eða koma í veg fyrir sjúkdóma eða heilsukvilla. Ráðfærðu þig ávallt við lækni eða aðra heilbrigðisstarfsmenn áður en ný meðferð hefst.

Collagen Boozt inniheldur vel úthugsaða blöndu af tilbúnum og náttúrulegum innihaldsefnum, sem eru valin með tvíþætta áherslu á bragð og gæði. Með því að blanda saman þessum efnum (e. synthetic ingredients); askorbínsýru, bíótín, sink, kopar og kalíumsorbat, getum við búið til stöðuga, örugga og mjög lífaðgengilega vöru í lítilli skammtastærð.

Kollagen fæðubótarefni eru framleidd með kollagenpeptíðum sem venjulega eru unnin úr dýrapróteinum með uppruna úr t.d. fiski, kúm, hænum og svínum, sem gerir þau óhentug fyrir vegan fólk. Framfarir hafa orðið í þróun á valkostum við kollagen með því að nota ger og bakteríur, en sá fróðleikur virðist ekki vera mikið í umræðunni, ennþá. Vegan-vænir valkostir einblína oft á næringarefni eins og C-vítamín, sink og plöntubundin prótein, sem eru notuð til að styðja við líkamann í eigin ferlum sem tengjast kollageni. Þessar aðferðir eru frábrugðnar kollagenfæðubótarefnum úr dýraríkinu, sem veita kollagenpeptíð með beinum hætti.

Collagen Boozt er náttúrulega bragðbætt með svörtum kirsuberjum. Við vildum hafa bragðnótur sem eru ásættanlegar og aðlaðandi fyrir marga á sama tíma og það hylur bragðið af sjávarkollagen peptíðum. Vinsamlegast hafðu samband og ráðfærðu þig við lækninn þinn eða heilbrigðisstarfsmann ef þú ert með ofnæmi fyrir steinávöxtum.

Almennt er talið öruggt að taka kollagen fæðubótarefni á meðgöngu eða meðan á brjóstagjöf stendur, en þú verður að hafa samráð um það fyrirfram við heilbrigðisstarfsmann þinn. Kollagen er náttúrulegt prótín sem finnst í líkamanum og viðbót við efnið getur boðið upp á kosti eins og aukna mýkt í húðinni, minni liðverki og hraðari bata á meðgöngutengdum vefjaskemmdum. Hins vegar eru engar sérstakar langtímarannsóknir til á kollagen fæðubótarefnum á meðgöngu eða við brjóstagjöf. Það eru líka hugsanlegir þungmálmar eins og kvikasilfur, í sjávarkollagen fæðubótarefnum. Kollagen Boozt er vottað af ráðgjafarnefnd um fiskveiðar (MSC) og vatnsrofið sjávarkollagen er fengið úr rekjanlegum og sjálfbærum úthafsveiddum villtum norðurheimskautsþorski, ufsa og ýsu frá Noregi þar sem fiskveiðar fylgja ströngum reglum ESB til að tryggja sem minnstu mengun á lýsi, til að halda slíkum þáttum langt undir settum öryggismörkum.

Kollagen fæðubótarefni eru fáanleg í fjölbreyttu formi, t.d. sem duft, hylki og í fljótandi formi. Kollagenið er fyrst og fremst fengið úr kúm, hænsnum og fiskmeti. Nautgripakollagen vísar til próteins sem er að finna í brjóski (bandvef) kúa, buffalóa og vísunda. Kollagen úr svínum, er fengið úr beinum og húð svína. Sjávarkollagen er kollagen af gerð I, þar sem peptíðin eru fengin úr beinum, húð og hreistri bæði fersks og saltvatnsfisks, aðallega úr úthafsveiddum þorski. Nýlega hafa vísindamenn einnig þróað aðra valkosti við kollagen með því að nota erfðabreyttar gertegundir og bakteríur.

Kollagen er til í nokkrum gerðum, en þrjár algengustu í mannslíkamanum eru af gerð I, II og III. Kollagen af ​​gerð I, er algengasta próteinið í líkama okkar (sem er um 90% af kollageni okkar) og það er notað til að byggja upp húðina, bandvefi, liðbönd og bein. Kollagen af gerð II, er algengast í brjóski og liðum. Kollagen af gerð III, stuðlar að uppbyggingu tengivefja eins og æða/slagæða, þarmaveggja, húð, vöðva og líffæra.

Kollagenpeptíð geta komið úr ýmsum áttum, þar á meðal fiskum, kúm og svínum. Sjávarkollagen, unnið úr fiski, er mikið notað og mikils metið fyrir hina smáu peptíðstærð sína. Það er svipað í uppbyggingu og kollagen sem er náttúrulega til staðar í líkamanum. Sjávarkollagen er einnig tengt sjálfbærari útdráttarferli og minni umhverfisáhrifum.
 
Kollagen af ​​gerð I, er algengasta próteinið í líkamanum og er um 90% af kollageni okkar en það er notað til að byggja upp húðina, bandvefi, liðbönd og bein. Kollagen af gerð II, er algengast í brjóski. Kollagen af gerð III, stuðlar að uppbyggingu tengivefja eins og æða/slagæða, þarmaveggja, húð, vöðva og líffæra.

Hugtakið vísar til þess hversu mikið af kollageninu, sem þú hefur melt, getur frásogast í blóðrásina. Sjávarkollagen úr roði og hreistri fiska gengst undir vatnsrof, ensímferli sem brýtur kollagenið niður í smærri kollagenpeptíð, sem auðveldar líkamanum að taka það upp.

Kollagenbætiefni eru fyrst og fremst framleidd úr kollagenpeptíðum (einnig þekkt sem vatnsrofið kollagen). Ólíkt kollageni sem líkaminn framleiðir náttúrulega eru kollagenpeptíð unnin úr amínósýrum í dýrapróteini. Kollagenið gengst undir vatnsrof, ensímferli sem brýtur það niður í smærri peptíð, sem gerir þau auðveldari fyrir líkamann að vinna úr.

Hýalúrónsýra er náttúrulega fjölsykra (tegund kolvetna) sem finnst um allan mannslíkamann. Það er mest í augnvökva og í bandvef eins og húð og brjóski. Efnafræðilega, er það nefnt glýkósamínóglýkan sem samanstendur af endurteknum einingum glúkúrónsýru og N-asetýlglúkósamíns, sem hefur sterka getu til að binda og halda í vatnssameindir.
 
Í líkamanum gegnir hýalúrónsýra mikilvægu hlutverki í uppbyggingu með því að leggja sitt að mörkum til utanfrumuefnisins — neti sameinda sem veitir frumum og vefjum stuðning. Nærvera þess hjálpar til við að viðhalda seigfljótandi einkennum í liðvökva, styður við rakamyndun vefja og stuðlar að styrkleika bandvefs. Náttúruleg framleiðsla á hýalúrónsýru minnkar með aldri, sem er eðlilegt lífeðlisfræðilegt ferli.
 
Vegna þessara eiginleika hefur hýalúrónsýra verið mikið rannsökuð og er almennt notuð á sviðum eins og húðlækningum, bæklunarlækningum og augnlækningum. Í húðvörum, er sýran oft notuð sem innihaldsefni vegna vatnsbindandi getu hennar og hlutverks í að viðhalda rakajafnvægi. Í læknisfræði, er hyalúrónsýra notuð í augnaðgerðum (sem seigfljótandi efni), liðsprautum (til að auka og aðstoða við smurningu) og rannsóknum á sárgræðslu.

Kollagen og hýalúrónsýra eru bæði náttúruleg efni sem finnast í líkamanum og gegna byggingarhlutverki í bandvef. Vegna eiginleika þeirra við að bæta og styrkja önnur efni, þá eru þau oft notuð í fæðubótarefnum. Kollagen er lykilþáttur í bandvef eins og húð, sinum, liðböndum og beinum, þar sem það veitir styrkleika í uppbyggingu. Kollagenpeptíð eru unnin úr dýrapróteini, en hýalúrónsýra er fjölsykra sem finnst í bandvef og liðvökva, þekkt fyrir hæfni sína til að binda vatn. Þegar þau eru sett saman í fæðubótarefni mynda þau góðan grunn en þessi tvö mikilvægu efni eru mikið rannsökuð og notuð bæði í næringarfræði og húðumhirðu.

Bakteríuörvandi efni (prebiotics) eru trefjaríkir fæðugjafar sem næra góðgerlana (probiotic) í örveruþarmaflóru okkar. Það örvar eiginleika kollagens til að virkja heilbrigða þarmaflóru og bætir virkni húðtálmana. Óvirkjaðar örverur (postbiotics) eru endanlegt niðurbrot af völdum örvera sem myndast þegar góðgerlar (probiotic) neyta bakteríuörvandi (prebiotic) trefja. Óvirkjaðar örverur (postbiotics) veita tvíþættan ávinning fyrir húðina með því að efla heilbrigða meltingu, húðraka og að viðhalda raka. Samblanda af bakteríuörvandi efnum og góðgerlum (synbiotics) er heitið sem gefið er yfir bætiefni sem inniheldur bæði góðgerla (probiotics) og bakteríuörvandi efni (prebiotics), eins og Collagen Boozt.

Kollagen fæðubótarefni eru oft samsett með viðbótarefnum eins og hýalúrónsýru, vítamínum og öðrum næringarefnum. Þegar mismunandi kollagen fæðubótarefni eru borin saman, er algengt að finna viðbótarvítamín eða skyld næringarefni. Það eru nokkrar ástæður fyrir þessu, t.d. eftir því hver varan er og hvaða tilætluðu áhrif hún eigi að hafa. Í sumum tilfellum, innihalda efnasambönd næringarefni sem eru rannsökuð vegna hlutverks þeirra í kollagenumbrotum eða starfsemi bandvefs. C-vítamín er þekkt fyrir að gegna hlutverki í eðlilegri kollagenmyndun, út frá framlagi þess til eðlilegrar lífeðlisfræðilegrar starfsemi.

Zinzino Blog

Upplýsingar, fróðleikur og innblástur á sviði heilsu og vellíðunar. (Sumir bloggpóstar eru eingöngu á ensku).