Þarmaheilsupróf
Er lífið að leiða þig í rétta átt?
Hlustaðu á þarmana – þeir hafa áhrif á heilsuna þína.
Þarmaheilsupróf
Er lífið að leiða þig í rétta átt?
Hlustaðu á þarmana – þeir hafa áhrif á heilsuna þína.
Í þörmunum er 70% af ónæmiskerfinu þínu* og hver angi þar inni er ólíkur. Að líta á þarmana, með einungis einum blóðdropa breytir öllu.
Líttu á alla flóruna í þörmunum. Taktu ábyrgð á eigin heilsu.
Mataræði og hvernig þú lifir hefur áhrif á hvort fæðan sem þú neytir verður að eldsneyti eða kveikir á streituviðbrögðum líkamans. Þegar þarmarnir eru í jafnvægi styðja þeir við allan líkamann. En ef sú er ekki raunin, þá getur það haft áhrif á orkustig og starfshæfni líkamans.
Kynntu þér þarmaheilsuprófið okkar
Næsta kynslóð þarmaheilsuprófa

Í heimablóðprófinu, sem er það fyrsta sinnar tegundar, veitir þurra blóðsýnið innsýn í þarmaflóru líkamans – allt með einum blóðdropa.
Hver er minn ávinningur?
Fyrirbyggjandi aðgerðir fyrir góða heilsu og lífsstíl með einum blóðdropa, engin hægðasýni nauðsynleg.
Innsýn og yfirlit yfir efnaskiptajafnvægi þarmana út frá fimm mismunandi heilsufarsvísum.

Fylgstu með merkjum líkamans og finndu út hvort ónæmiskerfið þitt er í jafnvægi eða undir álagi.
Gott tækifæri til breytinga með því að sníða mataræði og lífsstíl út frá þarmaþörfum líkamans.
Svona byrjarðu ferðalagið þitt
Þarmarnir eru að tala. Finndu út hvernig á að hlusta.
Vísindamenn okkar hafa uppgötvað einstakan glugga inn í þarmastarfsemi líkamans sem byggir á því hvernig líkaminn brýtur niður mikilvæga amínósýru úr fæðunni. Með því að skoða hvaða merki þetta ferli skilur eftir sig í blóðinu, leiðir prófið í ljós hvernig þarmarnir og líkaminn vinna saman að því að styðja við almenna heilsu, sem birtist í 5 mismunandi heilsufarsvísum.
Tryptófan (TRP)
Nauðsynleg amínósýra sem líkami þinn og þarmabakteríur nota til að framleiða mikilvæg umbrotsefni – eins og IPA og KYN – sem hafa áhrif á þarma- og efnaskiptaheilsu.
Indól-3-própíónsýra (IPA)
Þegar mataræði inniheldur gæðafæðu með miklum trefjum þá dafna góðar bakteríur og breyta tryptófani í þarmaverndandi umbrotsefni sem nefnist IPA, og það eflir ónæmisstarfsemi og betri efnaskiptaheilsu í líkamanum.
Kynúrenín (KYN)
Ef mataræðið þitt er slæmt, ná slæmar bakteríur yfirhöndinni og tryptófan umbrotnar í streituviðbragðsefnið kynúrenín, sem er leið líkamans til að virkja ónæmiskerfið til að berjast gegn ójafnvæginu.
Heilsuyfirlit þarma
Heildarniðurstöður frá þörmunum gefa innsýn í hvernig þarmarnir, ónæmiskerfið og efnaskiptakerfið vinna saman að því að styðja líkamann.
IPA stig
Sýnir hve mikið er af umbrotsefninu IPA sem þarmabakteríurnar þínar framleiða til að halda efnaskiptunum í jafnvægi.
Stuðningur við ónæmiskerfið í örveruflórunni
Sýnir jafnvægið á milli IPA sem verndar þarmana og kynureníns sem bregst við streitu.
Skilvirkni þarmaflórunnar
Sýnir hversu vel þarmabakteríurnar þínar breyta tryptófani í IPA sem verndar þarmana.
Vísir um ónæmisálag
Sýnir hvernig ónæmiskerfið þitt bregst við - hvort sem það er undir streitu eða í rólegu og jafnvægisríkara ástandi, þökk sé hinu verndandi umhverfi þarmanna.

Hvernig prófið virkar
Hvernig á að lesa úr prófinu
Vottun og örugg greining frá þriðja aðila
Nafnlausa blóðsýnið þitt er eingöngu greint af óháðu efnagreiningarstofunni Vitas til að tryggja rétta meðhöndlun og óhlutdrægar niðurstöður. Fræðast nánar
„Í rannsóknum mínum á þessu sviði uppgötvaði ég að tryptófan og umbrotsefni þess veita einstaka innsýn í þarmana og hjálpa okkur að skilja hvernig mataræði og lífsstíll hafa áhrif á bæði þarmastarfsemi og jafnvægi líkamans í heild sinni.“
Dr. Martina Torrissen,
Sérfræðingur í rannsóknum og þróun
Hugsaðu um þarmana þína og þeir munu hugsa um þig
Þarmarnir eru einstakir – mótaðir af fæðunni þinni, svefni og daglegri rútínu. Þegar það ríkir jafnvægi í þörmum þá nýtur allur líkaminn góðs af því. Viltu læra meira um mismunandi leiðir til að hjálpa þörmunum að styðja þig?

Tvö próf. Ljósmynd af heilsu þinni
BalanceTest blóðprófið okkar sýnir stöðu nauðsynlegra fitusýra í líkamanum og þarmaheilsuprófið skoðar efnaskiptamerki í þarmaflórunni og hvernig líkaminn er að bregðast við þeim merkjum.

Algengar spurningar
Nei, þetta er próf sem skoðar efnaskiptajafnvægi í þörmunum. Hefðbundin hægða- eða saurpróf skoða hvaða bakteríur lifa í þörmum þínum. Þarmaheilsuprófið okkar mælir í staðinn hvað bakteríurnar gera, í gegnum merki í blóðinu sem endurspegla hvernig þarmarnir hafa samskipti við efnaskipti þín. Með því að sameina þessi merki gefur prófið yfirlit yfir núverandi efnaskiptaferil þinn í þörmum. Ekki þarf að taka saursýni — bara dropa af blóði úr fingurgómi — sem veitir þægilega innsýn í tengslum við mataræði þitt og lífsstíl.
Hefðbundin hægðapróf sýna hvaða örverur eru til staðar í þörmum þínum, en tilvist þeirra ein og sér segir ekki til um virkni þeirra. Þarmaheilsuprófið mælir í staðinn ákveðin merki í blóði þínu, þar á meðal umbrotsefni sem framleidd eru af þarmabakteríum og hvernig líkaminn vinnur úr tryptófani, nauðsynlegri amínósýru úr mat. Til viðbótar við meltinguna, taka þarmarnir þátt í því hvernig næringarefni eru unnin og hvernig ákveðin efnasambönd myndast. Að fylgjast með þessum merkjum hjálpar þér að skilja betur efnaskiptaferil þinn í þörmum og veitir þægilega innsýn í hvernig þarmarnir og efnaskipti þín „tala saman“. Ólíkt saurprófum krefst þessi aðferð aðeins einfaldrar blóðsýnistöku úr fingri.
Með hægðaprófum er hægt að sjá hvaða örverur eru til staðar í þörmum þínum og þær upplýsingar eru gagnlegar fyrir rannsóknir. En nærvera þeirra ein og sér, segir ekki til um hvort örverurnar séu virkar, hvað þær framleiða eða hvernig líkaminn bregst við þeim. Þarmaheilsuprófið okkar fer skrefinu lengra með því að mæla tiltekin umbrotsefni í blóði þínu. Þetta gefur óbeina mynd af örveruvirkni (í gegnum indólprópíónsýru, sem framleidd er af ákveðnum þarmabakteríum) og efnaskiptum tryptófans (í gegnum KYN/TRP hlutfallið). Þessir heilsuvísar eru vísindalega tengdir við fjölbreytileika þarmaflóru, trefjaneyslu og þætti ónæmiskerfisins, og veita viðbótarupplýsingar sem hægðapróf geta ekki ein og sér sýnt fram á.
Niðurstöður prófsins eru birtar sem fimm skýrir heilsuvísar en þeir veita innsýn í hvernig þarmaflóran og líkaminn vinna saman. Hvert merki sýnir fram á mismunandi leiðir sem þarmabakteríurnar þínar vinna úr umbrotsefnum og hvernig þessi merki endurspegla hvort efnaskipti þín halla sér að jafnvægi eða ónæmistengdri virkni. Niðurstöður prófanna eru trúnaðarupplýsingar og alltaf greindar af Vitas AS, óháðri og sjálfstæðri efnagreiningarrannsóknarstofu, áður en þær eru færðar yfir í persónulega prófskýrslu. Upplýsingarnar í skýrslunni þinni eru byggðar á niðurstöðum sem fengnar voru úr einum blóðdropa, þar sem mæld voru þrjú umbrotsefni (IPA, KYN, TRP) og hlutföll þeirra (IPA/KYN, IPA/TRP, KYN/TRP). Þessum upplýsingum er ætlað að hjálpa þér að skilja betur efnaskiptaferil þinn í þörmum og hvernig hann tengist núverandi mataræði þínu og lífsstíl. Þú getur notað þær sem leiðbeiningar þegar þú íhugar persónulegt mataræði og fæðubótarefnarútínu sem styður við almenna vellíðan þína, ásamt faglegri ráðgjöf eftir þörfum.
Öll sýni eru greind af Vitas AS, óháðri og sjálfstæðri efnagreiningarstofu, sem er leiðandi í heiminum í þurrblóðprófum. Greiningaraðferðin byggir á viðurkenndri tækni og formleg staðfestingarrannsókn hefur staðfest og vottað nákvæmni hennar og áreiðanleika.
Þú tekur prófið í rólegheitum heima hjá þér. Engin þörf er á saursýni – aðeins þarf nokkra dropa af blóði úr einfaldri fingurstungu. Prófið tekur aðeins nokkrar mínútur og niðurstöðurnar eru tilbúnar á zinzinotest.com innan þriggja vikna. Umbrotsefnin sem mæld eru, geta verið mismunandi eftir fæðuinntöku viðkomandi dags. Til að tryggja samræmi, mælum við með að taka prófið á fastandi maga að morgni eftir vatnsföstu yfir nótt, í að minnsta kosti 10 klukkustundir.
Þarmaheilsan okkar er dýnamísk. Allar breytingar á lífsstíl okkar, mataræði eða daglegum venjum geta haft áhrif á næringarupptökuna og hvernig við bregðumst við mat. Þetta próf mælir tryptófanefnaskipti þín og þarmaflórutengda virkni, sem bæði eru háð fæðunni sem þú borðar og hvernig þú lifir. Þess vegna mælum við með að taka tvö próf. Fyrra prófið veitir grunnmælingu á núverandi prófíl eða stöðu. Til að minna þig á hvenær tímabært er að kanna framfarir þínar, færðu seinna prófið sent sérstaklega til þín eftir fjóra mánuði. Þetta tímabil býður upp á leið til að fylgjast með hvernig prófíllinn þinn gæti endurspeglað breytingar á mataræði eða lífsstíl og gefur þér tækifæri til að gera breytingar ef þú vilt styðja við jafnvægi í þörmum og efnaskiptum þínum.
Þetta próf er eingöngu ætlað til upplýsinga og til að auka vellíðan. Því er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða koma í veg fyrir nokkurn sjúkdóm. Leitið alltaf til heilbrigðisstarfsmanns varðandi læknisfræðilega ráðgjöf.
Á þessum tímapunkti, eru ekki næg vísindaleg gögn í boði, til að hægt sé að setja fram sérstök viðmið eða gildi fyrir börn og þess vegna mælum við aðallega með prófinu fyrir fullorðna. Sömu umbrotsefnin eru mæld bæði hjá börnum og fullorðnum en markgildin eru byggð á vísindalegum gögnum, sem byggjast aðallega frá fullorðnum. Að sama skapi eru efnaskipti og þarmaflóra barna enn að þróast, sem þýðir að gildi þeirra eru hugsanlega ekki beint sambærileg við gildi fullorðinna. Prófið getur, samt sem áður, veitt börnum gagnlega innsýn á stöðuna en niðurstöðurnar ætti þó að túlka með fyrirvara út frá áðurnefndum atriðum í huga. Eftir því sem fleiri gögn verða tiltæk í framtíðinni, þá gætu verið sett sérstök viðmiðunargildi fyrir mismunandi aldurshópa.
Þarmaheilsuvísirinn gefur þér innsýn í hvernig þarmarnir, ónæmiskerfið og efnaskiptakerfin hafa samskipti. Þessi vísir er breytilegur og getur tengst mataræði þínu og lífsstíl og almennu lífeðlisfræðilegu ástandi líkamans. Rannsóknir sýna að þættir eins og neysla trefja og prebiotics trefja, jafnvægi á fitu í fæði og stjórnun á streitu, geta haft áhrif á örveruflóruna og efnaskipti. Með tímanum, geta þessir valkostir endurspeglast í þarmaheilsuvísi þínum.
Það eru margar ytri breytur sem hafa áhrif á þessa þætti, þar á meðal mataræði, lífsstíll, erfðafræði og almennt lífeðlisfræðilegt ástand líkamans – þannig að við getum ekki ábyrgst að árangurinn muni batna. Það sem við getum sagt er að rannsóknir sýna að ákveðnar ákvarðanir geta tengst jákvæðum breytingum: aukinni trefjaneyslu (ZinoBiotic+), jafnvægi fitusýra (BalanceOil+) og stuðningi við næringu með vítamínum, steinefnum og beta-glúkönum (Xtend/Xtend+). Þessi fæðubótarefni eru hönnuð í þeim tilgangi að styðja við hollt mataræði og lífsstíl en ekki sem staðgengill fyrir fæðuna sjálfa. Fyrir þá sem vilja styðja við efnaskiptajafnvægi í þörmum, mælum við að viðkomandi einbeiti sér að fjölbreyttu mataræði sem samanstendur af heilum fæðutegundum (heilkornavörum, grænmeti, laufgrænmeti, belgjurtum), þar á meðal gerjuðum matvælum (eins og kimchi, súrkáli, jógúrt með lifandi ræktun), pólýfenólríku jurtafæði og extra virgin ólífuolíu, ásamt reglulegri hreyfingu, streitustjórnun, góðum svefni og umhyggju fyrir almennri vellíðan. Fæðubótarefni Zinzino eru ætluð til að styðja við þessa hollu valkosti, með því að veita viðbótar næringarstuðning.
Hefur þú einhverjar óhlutdrægar, vísindalegar sannanir til að staðfesta rannsóknir þínar og niðurstöður?
Já. Prófið byggir á viðurkenndum vísindalegum rannsóknum um efnaskipti tryptófans og tengsl þess við þarma- og efnaskiptaheilsu. Þessi mældu efnamerki (IPA, KYN, TRP og hlutföll þeirra) hafa verið rannsökuð mikið sem vísbendingar um örveruvirkni og ónæmistengd efnaskipti.
Allar greiningar eru framkvæmdar af Vitas AS, óháðri efnagreiningarstofu sem er viðurkennd á alþjóðavettvangi fyrir sérþekkingu sína í prófunum á þurrkuðum blóðblettum (DBS). Greiningaraðferðin er vottuð og niðurstöður eru studdar af vaxandi fjölda alþjóðlegra rannsókna á hlutverki þessara umbrotsefna í samspili þarmaflórunnar og örveruflórunnar og efnaskiptaferlum.
Efnaskiptaheilsa endurspeglar hvernig líkaminn jafnar orku og næringarefni í daglegu lífi. Hugtakið vísar í skilvirkni líkamans við að breyta fæðu í orku og viðhalda jafnvægi í lykilstarfsemi eins og blóðsykursstjórnun, fituefnaskiptum og orkunotkun. Þegar þessi ferli virka á skilvirkan hátt upplifir fólk oft stöðuga orku og daglega vellíðan. Þessi ferli geta stjórnast af mataræði, lífsstíl og almennri lífeðlisfræði. Rannsóknir benda til þess að þættir eins og neysla trefja, fjölbreytt þarmaflóra, hollt mataræði, regluleg hreyfing og streitustjórnun geti tengst heilbrigðari efnaskiptamynstrum. Þegar þessi kerfi virka ekki sem skyldi, geta einstaklingar tekið eftir áhrifum eins og þreytu, breytingum á þyngd eða minnkaðri einbeitingu.
Virkni þarmaörvera lýsir því hvað þarmabakteríurnar þínar eru að gera — hversu virkar þær eru, hvernig þær brjóta niður fæðu og hvað þær framleiða í kjölfarið. Ef við líkjum þörmunum við verksmiðju, þá endurspeglar örverustarfsemin vinnu bakteríanna. Þarmaheilsuprófið mælir ekki allt sem örverurnar þínar gera. Í staðinn eru lykilumbrotsefni í blóðinu þínu skoðuð sem endurspegla bæði örveruvirknina og viðbrögð líkamans. Þetta veitir okkur óbeint yfirlit yfir hvernig mataræði, lífsstíll og þarmaflóra hafa samskipti.
Zinzino Blogg
Upplýsingar, fróðleikur og innblástur á sviði heilsu og vellíðunar.