Cart
Þín karfa

HbA1c Test

Settu framtíðarheilsuna þína í forgang.

Þekking er máttur. Hugsaðu um heilsuna og fáðu að vita hvort núverandi lífsstíll þinn sé sjálfbær eða hvort þú þurfir að grípa til aðgerða núna til að tryggja góða heilsu til framtíðar. Við setjum langtíma blóðsykurgildi þín í samhengi við mataræðið þitt og almennar venjur þínar og leiðbeinum þér í átt að betri heilsu. Prófið felur í sér lífsstílsmat með einstaklingsmiðuðum ráðleggingum um mataræði og hreyfingu.  

Tilboðsverð
52 € (Sparaðu 30 %) (3,00 cr)
Smásöluverð
74 €
Helstu kostir
  • Mæling á langtíma blóðsykursgildum
  • Lífstílsmat
  • Fylgir áhættumat fyrir sykursýki af gerð 2
  • Persónusniðnar ráðleggingar um hvernig megi bæta heilsuástand
  • Fylgstu með framförinni
  • Nafnlausar og klínískt nákvæmar niðurstöður frá óháðri og vottaðri rannsóknarstofu
Taka prófið
1. Zinzino prófið er viðurkennd greiningarvara í glasi sem notuð er til að taka blóðsýni heima fyrir. - Þvoðu hendurnar fyrst með sápu og skolaðu vel með volgu vatni og þurrkaðu svo.

2. Taktu sýnaspjaldið úr pappírsumslaginu. Geymdu umslagið til að nota síðar. Rífðu SAVE hlutann af sýnaspjaldinu og taktu mynd af prófunarauðkenninu. Þú getur aðeins séð þínar prófniðurstöður með þínu nafnlausa prófunarauðkenni. Leggðu spjaldið á borðið þannig að hringirnir tveir vísi upp.

3. Örvaðu blóðflæðið með því að snúa handleggjunum í stóra hringi eða með því að hrista hendurnar niður á við í 20 sekúndur.

4. Taktu út einnota stungunálina. Fjarlægðu öryggishettuna og þá er stungunálin tilbúin til notkunar. Notaðu sprittþurrkuna til að hreinsa fingurgómana (mælt er með að nota löngutöng). Leggðu stungunálina upp að neðri hluta fingurgómsins sem vísar að söfnunarpappírnum á borðinu. Ýttu á endann á stungunálinni í áttina að fingrinum þar til þú heyrir smell. Stungunálin mun sjálfkrafa stinga þig í fingurinn.

5. Ekki snerta síupappírinn með fingrunum.

6. Fylltu einn hring í einu með blóði. Kreistu fingurinn varlega og bíddu eftir að blóðdropi detti af sjálfu sér inn í hringinn. Ef einn blóðdropi hylur ekki hringinn skaltu leyfa einum dropa til viðbótar að drjúpa strax. Láttu sýnaspjaldið liggja lárétt við stofuhita í að minnsta kosti 10 mínútur svo að sýnin nái að þorna vel.

7. Settu sýnaspjaldið aftur í pappírsumslagið. Láttu pappírsumslagið svo í álþynnupokann og lokaðu honum. MIKILVÆGT: Ekki fjarlægja rakadræga pakkann sem er inni í álþynnupokanum.

8. Settu lokaða álþynnupokann í stóra umslagið með heimilisfangi rannsóknarstofunnar. ATH.: Þú verður að láta réttan fjölda frímerkja á umslagið áður en þú póstleggur það. Skráðu prófkóðann þinn á www.zinzinotest.com. Þetta er vefsíðan þar sem þú getur skoðað niðurstöðurnar úr prófinu síðar. Það tekur 10-20 daga þar til niðurstöður prófanna eru tilbúnar. MIKILVÆGT: Geymdu SAVE hlutann af spjaldinu. Þú getur aðeins séð þínar prófniðurstöður með þínu nafnlausa prófunarauðkenni.

9. Næsta skref er að svara lífsstílsspurningalistanum með því að skrá þig inn með þínu nafnlausa prófaauðkenni. Til að geta svarað öllum spurningum þarftu að hafa aðgang að málbandi og auðkenni fyrir fyrri jafnvægis- og/eða D-vítamínpróf.

10. Hvernig á að mæla mittið: – Sláðu máli utan um miðjuna, rétt fyrir ofan nafla. – Gættu þess að málbandið sé vel strekkt, en án þess að það skerist inn í húðina. – Andaðu náttúrulega og mældu. – Mældu aftur til öryggis.

RÁÐ! Ef þú átt ekki málband, þá má nota reim eins og þú myndir nota málband og mæla reimina með tommustokk.
Þú tekur í taumana með prófi
Mæling á langtíma blóðsykursgildum í gegnum Hemoglobin A1c (HbA1c) prófið er eitt mikilvægasta próf sem þú getur tekið til að fá yfirsýn yfir hvernig núverandi mataræði og lífsstíll styður heilsufar þitt til lengri tíma litið. Prófið mælir meðalblóðsykur (blóðglúkósa) í líkamanum yfir undanfarna þrjá mánuði, nokkuð sem daglegt mataræði og lífsstílsákvarðanir hafa mikil áhrif á. Afar mikilvægt er að halda meðalgildum blóðsykurs eðlilegu, þar sem hækkuð gildi gefa til kynna að geta líkamans til að stýra blóðsykri með notkun insúlíns gæti verið skert og það þarf að bregðast við slíku. Þetta er vegna þess að hækkað blóðsykursgildi getur leitt til þess að viðkomandi þrói með sér sykursýki af gerð 2 og með tímanum getur það skaðað ýmis kerfi líkamans, svo sem augu, taugar og æðar. Góðu fréttirnar eru þær að við höfum heilsuna í eigin höndum og samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (World Health Organization, WHO) eru nefnd eftirfarandi atriði sem fólk getur gert til að sporna við sykursýki af gerð 2: – ná og viðhalda eðlilegri líkamsþyngd; – stunda líkamlega hreyfingu - hreyfa sig í að minnsta kosti 30 mínútur af meðalmiklum krafti flesta daga. Þörf er á meiri hreyfingu ef fólk vill halda þyngdinni í skefjum; – borða heilbrigt mataræði, forðast sykur og mettaða fitu og – forðast tóbaksnotkun þar sem reykingar auka líkurnar á sykursýki og hjarta- og æðasjúkdómum. Breytingar á getu líkamans til að stjórna blóðsykri gerist hægt og jafnvel þó að HbA1c-prófið gæti gefið jákvæðar niðurstöður í dag, gæti mataræði og lífstíll samt bent til þess að þetta gæti breyst til lengri tíma litið. Því höfum við kynnt til sögunnar okkar eigið HbA1c-próf fyrir þig til að fá skýran upphafspunkt fyrir heilsuvegferð þína. Það mælir bæði langtíma blóðsykurstig þitt í dag og tekur tillit til þess hvernig núverandi mataræði og lífsstíll styður framtíðarheilsu þína.
Hvernig virkar það?
1. Taktu prófið Þú byrjar á því að stinga í fingurinn og dreypa 1-2 blóðdropum á síupappír.

2. Virkjaðu prófið Skráðu prófið þitt inn með því að slá inn prófunarauðkennið og fylla út lífstílsspurningalistann. Öll gögnin eru nafnlaus.

3. Bíddu eftir greiningunni Vitas Analytical Services hefur meira en 25 ára reynslu af nýjustu þekkingu og tækni, sem tryggir að þau munu greina sýnið þitt með sjálfstæðum hætti og gæta að persónuvernd þinni.

4. Sæktu niðurstöðurnar Niðurstöður þínar eru aðgengilegar og eru birtar með auðskiljanlegum og myndrænum hætti innan 10-20 daga.

5. Byrjaðu ferðalagið Njóttu góðs af skýrum upphafspunkti fyrir vegferð þína að bættri heilsu. Breyttu varfærnislega og/eða viðhaltu mataræði þínu eða lífstíl til að búa að bættri heilsu út lífið.

6. Fylgstu með framförinni Þær ákvarðnir sem þú tekur á hverjum degi með tilliti til mataræðis og hreyfingar geta haft áhrif á langtíma blóðsykursgildi. Að því marki að niðurstöðurnar munu breytast byggt á þeim ákvörðunum sem þú tekur. Við mælum með því að þú fylgist með virkum hætti með þessum gildum á grundvelli persónusniðinna ráðlegginga byggt á þínu prófi til að tryggja að þær ákvarðanir sem þú tekur séu þær sem henti best fyrir þína heilsu.
Sjálfstæð rannsóknarstofa
Vitas er GMP-vottuð efnagreiningarrannsóknarstofa sem er viðurkennd sem ein sú fremsta í sinni röð á sviði rannsókna á þurrum blóðsýnum. Vitas er með 25 ára reynslu af því að veita hágæða, sérsniðnar litskiljunargreiningar sem byggja á nýjustu þekkingu og tækni. Vitas á rætur að rekja til Institute of Basic Medical Sciences í háskólanum í Osló, sem er stærsta stofnun á sviði næringarrannsókna í allri Evrópu.

TENGDAR VÖRUR

Hér hefst persónubundin leið þín að heilsuhreysti! Taktu prófið til að skilgreina ómega 3 snið þitt.
129 € Tilboðsverð
183 € Smásöluverð
(5,00 cr)
Hér hefst persónubundin leið þín að heilsuhreysti! Taktu prófið til að skilgreina ómega 3 snið þitt.
178 € Tilboðsverð
366 € Smásöluverð
(9,00 cr)
Sjálfspróf til að greina magn d-vítamíns í blóðI
52 € Tilboðsverð
74 € Smásöluverð
(3,00 cr)
Langtíma blóðsykurspróf og lífstílsmat
52 € Tilboðsverð
74 € Smásöluverð
(3,00 cr)