Cart
Shopping cart
Heilsa • fimmtudagur, 25. nóvember 2021 • 3 min

Hvernig á að taka Omega viðbótina þína

By Zinzino

Í ljósi hins ótrúlega heilsufarslega ávinnings af Omega-3 er mikilvægt að taka það inn á réttan hátt. Að auka inntöku Omega-3 er eitt það besta sem þú getur gert fyrir heilsuna, því það styður við eðlilega starfsemi heila1 og hjarta2 og viðheldur eðlilegri sjón3 og eðlilegum blóðþrýstingi4.

Fiskur og aðrar náttúrulegar uppsprettur Omega-3 ættu að vera fyrsti valkostur þinn til að njóta góðs af þessum jákvæðu áhrifum. Hins vegar gæti verið erfitt að fá nægt magn af þessu nauðsynlega næringarefni í gegnum fæðuna eingöngu og þú gætir þurft að bæta við næringuna þína með því að taka fæðubótarefni.

BalanceOil+ er gimsteinninn í prófbyggðri og einstaklingsmiðaðri stefnu Zinzino. Um er að ræða Omega Balance fæðubótarefni með pólýfenólum sem er auðugt af ólífupólýfenólum og D3-vítamíni. Hrein, óerfðabreytt blanda af olíum sem er framleidd úr villtum smáfiski og hágæða extra virgin ólífuolíu sem styður líka við eðlilegt ónæmiskerfi5, veitir vörn gegn oxunarálagi6og hjálpar til við að viðhalda heilbrigðu magni af kalsíum í blóði7, beinum8, vöðvastarfsemi9, tönnum10 og frumuskiptingu11.

Með BalanceOil+ getur þú bætt heilsuna þína með vörum sem eru byggðar á vísindum og eru sérsniðnar að þínum þörfum. Bættu heilsuna með því að bæta fiskiolíu við daglegt mataræði þitt. BalanceOil+ er fæðubótarefni í vökvaformi og því er hægt að taka það með ýmsum ólíkum leiðum.

15+ EFSA-samþykkt jákvæð heilsuáhrif, án fiskibragðsins

Gefðu líkamanum þínum 2.500 mg af Omega-3, 1.300 mg EPA, 700 mg DHA, 150 mg DPA og 700 mg af Omega-7 í hverjum 12ml skammti…. Hér eru fimm vinsælustu leiðirnar til að koma jafnvægi á líkamann innan frá, án þess að sætta sig við vont bragð.

Eitt og sér

Fáðu þér vítamínin þín á tóman maga um leið og þú vaknar. Helltu skammtinum þínum einfaldlega í glas og drekktu hann á meðan þú bíður eftir kaffinu. Það er góð tilfinning að byrja daginn á einhverju sem gerir manni gott. 

Sem #BalanceShot

Viltu helst taka fæðubótarefnin snemma á morgnana til að ljúka því af? Settu BalanceOil+ flöskuna þína við hliðina á kaffivélinni þinni svo þú gleymir því ekki. Á meðan þú ert að laga fyrsta bollann skaltu grípa snafsflöskuna og taka daglega skammtinn þinn – 1/3 BalanceOil+ og 2/3 vatn eða djús fyrir hinn fullkomna #BalanceShot

Í Omega-3 djúsuppskrift

Ef þú kýst að fá þér djús á morgnana geturðu bætt BalanceOil+ skammtinum þínum við innhaldsefnin. Þegar kemur að vítamínum fyrir djúsa eru möguleikarnir óþrjótandi. BalanceOil+ er hin fullkomna viðbót við hvers konar djús.

Zinzino samfélagið elskar að nota túrmerik, grænkál, spínat, bláber, jarðarber, gríska jógúrt, sítrónur, agúrkur, banana, appelsínur, engifer, cayenne, chia, hörfræ, avókadó, rauðrófur, epli, hafra, kakó, myntu og gulrætur. Settu BalanceOil+ skammtinn þinn út í djúsinn. Það er auðveldasta leiðin til að fá öll þessi næringarefni, auk 15+ jákvæðra heilsuáhrifa BalanceOil+.

Með vatni, safa eða kombucha  

Byrjaðu daginn með glasi af sítrónuvatni, safa, kombucha eða bara vatni (og AquaX eða BalanceOil+). AquaX er hluti af BalanceOil+ fjölskyldulínunni en er frábrugðið að því leyti að það innheldur Aquacelle – sem gerir olíunni kleift að leysast upp í vatni. Njóttu betri áferðar, bragðs og frásogs samanborið við aðrar Omega-3 vörur. Helltu BalanceOil+ skammtinum þínum út í og blandaðu honum saman við uppáhaldsdrykkinn þinn. Þú munt gleyma að hann inniheldur fiskiolíu.

Geltöflur

Stundum er þægilegra að taka öll fæðubótarefnin inn í einu. Taktu Essent+, töfluútgáfuna af BalanceOil+. Meira að segja umbúðirnar eru náttúrulegar, því hylkin eru gerð úr fiskigelatíni. Essent+ er með tvö innihaldsefni sem ekki er að finna í vökvaformi – kakóduft og hreinar ansjósur, þríglýseríðþykkni sem inniheldur 85% EPA og DHA.

Þú munt sennilega finna upp á þínum eigin leiðum til að neyta BalanceOil+ eða Essent+, en þessi upptalning er góður upphafspunktur. Láttu ekki tilviljun ráða för þegar kemur að bættri heilsu. Ákveddu hvort þú viljir heldur taka fiskiolíuna þína á morgnana eða í eftirmiðdaginn og festu það sem hluta af daglegu rútínunni þinni. Finndu jafnvægið þitt og haltu þig við það.

* Þessar fullyrðingar hafa ekki verið metnar af bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu (Food and Drug Administration). Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða koma í veg fyrir nokkurn sjúkdóm.

1. DHA contributes to the maintenance of normal brain

DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegri heilastarfsemi. Fullyrðinguna má aðeins að nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 40 mg af DHA í hverjum 100 g og fyrir hverjar 100 kkal. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af DHA. Inntaka dókósahexensýru (DHA) mæðra stuðlar að eðlilegum heilaþroska hjá fóstrum og börnum sem eru á brjósti. Veita skal barnshafandi konum og konum með börn á brjósti upplýsingar þess efnis að dagleg inntaka DHA þurfi að vera 200 mg til viðbótar við ráðlagðan dagskammt af Omega-3 fitusýrum fyrir fullorðna, þ.e. 250 mg af DHA og EPA. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 200 mg dagskammt af DHA.

2. DHA and EPA contribute to the normal function of the heart

EPA og DHA stuðla að eðlilegri hjartastarfsemi. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k það magn af EPA og DHA sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR Omega-3 FITUSÝRUR samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn skuli upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af EPA og DHA.

3. DHA contributes to the maintenance of normal vision

DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegri sjón. Fullyrðinguna má aðeins að nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 40 mg af DHA í hverjum 100 g og fyrir hverjar 100 kkal. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af DHA. Inntaka dókósahexensýru (DHA) stuðlar að eðlilegum sjónþroska ungbarna upp að 12 mánaða aldri. Neytandinn skal upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 100 mg af DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um þurrmjólk fyrir ungbörn eldri en hálfs árs skulu a.m.k 0,3% af fitusýrum hennar vera DHA.

4. DHA and EPA contribute to the maintenance of normal blood

DHA og EPA stuðla að því að viðhalda eðlilegu þríglýseríðmagni í blóði. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda 2 g dagskammt af EPA og DHA. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 2 g af EPA og DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um fæðubótarefni og/eða efnabætt matvæli skulu neytendur einnig upplýstir um að ekki skuli taka inn meira en sem nemur 5 g af ráðlögðum dagskammti af EPA og DHA samanlagt. DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegum þríglýseríðgildum í blóði. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda 2 g dagskammt af DHA og innihalda DHA ásamt eikósapentaensýru (EPA). Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 2 g af DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um fæðubótarefni og/eða efnabætt matvæli skulu neytendur upplýstir um að ekki skuli taka inn meira en sem nemur 5 g af ráðlögðum dagskammti af EPA og DHA samanlagt.

5. Vitamin D contributes to immune system

D-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Fullyrðinguna má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006

6. Olive oil polyphenols

Pólýfenólar í ólífuolíu stuðla að verndun fituefna í blóðinu gegn oxunarálagi: Að skipta mettaðri fitu í mataræði út fyrir ómettaða fitu stuðlar að viðhaldi eðlilegra kólesteról-gilda í blóði. Olíusýra er ómettuð fita. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um ólífuolíu sem inniheldur a.m.k. 5 mg af hýdroxýtýrósóli og afleiðum þess (þ.e. ólevrópein efnasambönd og týrósól) í hverjum 20 g af ólífuolíu. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 20 g af ólífuolíu.

7. Vitamin D calcium levels

D-vítamín stuðlar að eðlilegu kalsíummagni í blóði. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.

8. Vitamin D normal bones

D-vítamín stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.

9. Vitamin D normal muscle function

D-vítamín stuðlar að viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfsemi. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.

10. Vitamin D normal teeth

D-vítamín stuðlar að viðhaldi eðlilegrar tannheilsu. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.

11. Vitamin D cell division

D-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki í frumuskiptingarferlinu. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.