Cart
Shopping cart
Heilsa • miðvikudagur, 4. janúar 2023 • 4 min

Hvers vegna að gerast vegan? Hér eru kostirnir og gallarnir

By Zinzino

Vinsældir veganisma hafa aukist á undanförnum árum. Möguleikar til að skipta út kjöti eru fleiri en nokkru sinni áður og það hefur aldrei verið jafn auðvelt að fylgja vegan-mataræði. Það er líka ýmislegt sem mælir með því að gerast vegan.

Ekki er hægt að alhæfa neitt um vegan-ætur, því fólk tekur upp vegan-mataræði af ólíkum ástæðum. Samkvæmt upplýsingum frá The Vegan Society snýst þessi lífstíll ekki aðeins um að standa vörð um réttindi dýra – því vegan-mataræði hefur margvísleg jákvæð áhrif fyrir heilsuna, umhverfið og matvælakeðjuna.

Hvers vegna veganismi?

The Vegan Society lýsir vegan-lífstílnum sem „leið til að haga lífinu þannig að komist sé hjá allri nýtingu og slæmri meðferð dýra, í því skyni að fæða og klæða sig eða í öðrum tilgangi.“

Hvers vegna að gerast vegan? Þetta er markviss lífstíll þar sem sjónarmiðið um að „gera ekki öðrum mein“ er í hávegum haft. Að neyta heilfæðis sem er að stofni til úr plöntum er kjarni vegan-mataræðis. Til að skilja betur jákvæð áhrif þess að gerast vegan er vert að fjalla aðeins um sambandið milli matarframleiðslu og umhverfisins.

Umhverfið og siðferði 

Samkvæmt The Vegan Society veldur kjötframleiðsla álagi á umhverfið. Samtökin halda því fram að ræktun nytjaplantna til að fóðra dýrin og flutningur þessara vara til neytenda hafi skaðleg áhrif á umhverfið. Framleiðsla plöntuafurða með tilheyrandi ræktun og vökvun hefur mun vægari umhverfisáhrif. Í umræðunni um kosti vegan-mataræðis skiptir líka máli að framleiðsla slíks fæðis þarfnast mun minna ræktunarlands.

Þessa vegna fullyrðir The Vegan Society að veganismi sé ein auðveldasta leiðin til að minnka vistfræðilegt fótspor þitt.

Heilsan okkar 

Að fylgja hollu plöntubundnu mataræði getur haft jákvæð áhrif fyrir heilsuna. Mikilvægast er að tryggja að þú fáir öll nauðsynlegu næringarefnin. Til að fá næringarefni úr plöntufæði þarf að borða heilkorn, grænmeti, ávexti, hnetur og fræ sem öll eru auðug af trefjum, nauðsynlegum vítamínum og steinefnum.

En það er líka mikilvægt að hafa í huga að ef þú tekur upp vegan-mataræði er erfitt að fá öll þessi næringarefni einungis úr fæðunni sjálfri. Þú þyrftir að borða nærri 4.000 næringarríkar kaloríur. Vegan-mataræði, sem inniheldur mikið af sykri og mettaðri fitu, er ekki síður óhollt en annars konar mataræði sem hefur sömu lesti.

Ef þú íhugar að hefja vegan-lífstíl þarft þú að skoða aðrar leiðir til að tryggja að þú fáir þessi næringarefni.

Að tryggja fjölbreytt vegan-mataræði

Ef fylgja á mataræði sem er án allra dýraafurða er ekki nóg að huga bara vel að því hvað er í matnum, heldur þarf líka að velta því fyrir sér hvaðan hann er fenginn og hvernig hann hefur verið prófaður. Í dag hafa matvæli ekki sama næringargildi og þau gerðu fyrir 100 árum.

Þú þarft að hugsa um erfðabreytingu, skordýraeitur og geymslu matvæla – vinnsluferlin sem liggja að baki matnum sem við setjum á diskinn okkar. Í dag er fólki hættara við skorti, til dæmis á D-vítamíni, einfaldlega vegna þess að við göngum ekki til vinnu í sama mæli og fólk gerði áður fyrr.

Þegar þú kynnir þér vegan-lífstílinn skaltu athuga hversu mikið magn af prótíni, Omega-3 fitusýrum, D-vítamíni, B12-vítamíni og kalki þú þarft á að halda á hverjum degi. Þetta eru allt næringarefni sem þarf að fá úr plöntubundnu fæði í stað kjöts og fisks áður. Fæðubótarefni eru besti vinur þeirra sem taka upp vegan-mataræði.

why-go-vegan-1.png

Bættu mataræði þitt með BalanceOil+ Vegan

Hið nýja Polyphenol Omega Balance fæðubótarefni frá Zinzino, BalanceOil+ Vegan er sérstaklega ætlað vegan-ætum, grænmetisætum og fólki sem vill olíu sem er auðug af Omega-3 en inniheldur ekki fiskilýsi.

Þetta er samverkandi blanda smáþörungaolíu sem styður við Omega-3 og D-vítamín gildin þín. BalanceOil+ Vegan inniheldur mikið magn af Omega-3 fitusýrunum EPA, DHA og DPA, hágæðajómfrúarólífuolíu sem er auðug af frumuverndandi((pólýfenólar í ólífuolíu vernda blóðlípíð frá oxunarálagi. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um ólífuolíu sem inniheldur a.m.k. 5 mg af hýdróxýtórósóli og afleiðum þess (t.d. ólevrópein-flóka og týrósól) í hverjum 20 g af ólífuolíu. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 20 g af ólífuolíu.)) pólýfenólum og vegan-vottuðu D3-vítamíni.

BalanceOil+ Vegan er ný kynslóð næringarefnis sem stuðlar að eðlilegri starfsemi hjartans((EPA og DHA stuðla að eðlilegri starfsemi hjartans. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn EPA og DHA sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR Omega-3 FITUSÝRUR samkvæmt upptalningu í Viðauka við Reglugerð (EB) nr. 1924/2006. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af EPA og DHA.)), heilans((DHA stuðlar að eðlilegri heilastarfsemi. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 40 mg af DHA í hverjum 100 g og fyrir hverjar 100 kílókaloríur. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af DHA. Inntaka dókósahexensýru (DHA) mæðra stuðlar að eðlilegum heilaþroska hjá fóstrum og börnum sem eru á brjósti. Veita skal barnshafandi konum og konum með börn á brjósti upplýsingar þess efnis að dagleg inntaka DHA þurfi að vera 200 mg til viðbótar við ráðlagðan dagskammt af Omega-3 fitusýrum fyrir fullorðna, þ.e. 250 mg af DHA og EPA. Fullyrðinguna má aðeins nota um matvæli sem veita a.m.k. 200 mg af DHA daglega.)) og ónæmis((D-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.)). kerfisins, auk annarra EFSA-viðurkenndra jákvæðra áhrifa fyrir heilsuna. Þetta er eina EPA og DHA varan sem hentar grænmetisætum og veitir lífrænan valkost (þörungaolíu) við hefðbundið fisklýsi.

Fyrir grænmetis- og vegan-ætur er mikilvægt að passa upp á að Omega-6:3 hlutfallið sé í góðu jafnvægi í ljósi hugsanlegrar aukinnar neyslu á unnum matvörum, einkum þegar kemur að valkostum við kjöt.

Taktu Zinzino BalanceTest prófið og bættu fitusýrustöðuna þína með því að nota BalanceOil+ Vegan. Hún er hrein, án erfðabreyttra lífvera og eiturefna og inniheldur enga ofnæmisvalda. Og það mikilvægasta er að hún er skráð hjá The Vegan Society.

Hvers vegna þá að gerast vegan? Að lokum snýst það um persónulegt val, en mikilvægt er að skilja hvaða áhrif breytingar á mataræði hafa á líkamann. Ef þú telur að vegan-lífstíllinn sé það rétta fyrir þig, vertu þá viss um að þú fylgir hollu og fjölbreyttu mataræði með aðstoð vegan-fæðubótarefna frá Zinzino.

Fáðu að vita Omega-6:3 hlutfallið þitt með Zinzino BalanceTest prófinu og byrjaðu að nota Zinzino BalanceOil+ Vegan.

Þessar fullyrðingar hafa ekki verið metnar af bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu (Food and Drug Administration). Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða koma í veg fyrir nokkurn sjúkdóm.

1. Olive oil polyphenols

Pólýfenólar í ólífuolíu stuðla að verndun fituefna í blóðinu gegn oxunarálagi: Að skipta mettaðri fitu í mataræði út fyrir ómettaða fitu stuðlar að viðhaldi eðlilegra kólesteról-gilda í blóði. Olíusýra er ómettuð fita. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um ólífuolíu sem inniheldur a.m.k. 5 mg af hýdroxýtýrósóli og afleiðum þess (þ.e. ólevrópein efnasambönd og týrósól) í hverjum 20 g af ólífuolíu. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 20 g af ólífuolíu.

2. DHA and EPA contribute to the maintenance of normal blood pressure

DHA og EPA stuðla að því að viðhalda eðlilegum blóðþrýstingi. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem veita 3 g dagskammt af EPA og DHA. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 3 g af EPA og DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um fæðubótarefni og/eða efnabætt matvæli skulu neytendur upplýstir um að ekki skuli taka inn meira en sem nemur 5 g af ráðlögðum dagskammti af EPA og DHA samanlagt.

3. DHA contributes to the maintenance of normal vision

DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegri sjón. Fullyrðinguna má aðeins að nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 40 mg af DHA í hverjum 100 g og fyrir hverjar 100 kkal. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af DHA. Inntaka dókósahexensýru (DHA) stuðlar að eðlilegum sjónþroska ungbarna upp að 12 mánaða aldri. Neytandinn skal upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 100 mg af DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um þurrmjólk fyrir ungbörn eldri en hálfs árs skulu a.m.k 0,3% af fitusýrum hennar vera DHA.

4. Vitamin D contributes to immune system

D-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Fullyrðinguna má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006