Cart
Shopping cart
Vísindalegar húðvörur • fimmtudagur, 1. júní 2023 • 2 min

Fáðu geislandi húð með því að bæta þessum tveimur vörum við daglegu rútínuna þína

By Zinzino

Hvað sérðu fyrir þér þegar þú hugsar um fegurð? Samhverfa og falleg húð? Glansandi brúnka? Þetta eru staðalímyndir af fegurð sem samfélagið heldur að okkur. En fegurð er ekki einhlít. Hún er huglæg og hver sér hana sínum augum. Staðalhugmyndir um fegurð eiga ekki upp á pallborðið með sama hætti og áður. Sönn, geislandi fegurð er meira en hverful tíska.

Fegurðarendurreisnin: róttæk sjálfsást

Við höfum öll hitt fólk sem geislar af sjálfstrausti en ekki á hefðbundinn hátt. Það er eitthvað við hana (eða hann) sem er aðlaðandi, á þann hátt sem erfitt er að skilgreina. Sönn fegurð er nefnilega fólgin í því að fagna því sem gerir okkur öll einstök. Og það eru til vörur sem geta hjálpað þér að átta þig á þessu og látið þér líða vel með eigið útlit. Vegna þess að ef skrokkurinn er ekki alveg í lagi er erfitt að láta sér líða vel.

Komdu líkama þínum aftur í jafnvægi  

Í ys og þys nútímans eru líkamar okkar komnir úr líkamlegu jafnvægi. 95% manna búa við Omega-6:3 hlutfall sem er úr jafnvægi (án þess að gera sér grein fyrir því). Heilbrigt hlutfall er 3:1 en flestir eru í 13:1 (eða miklu verra eftir því hvar þú býrð), vegna þess að við neytum of mikils af Omega-6 og fáum ekki nógu mikið af nauðsynlegum Omega-3 fitusýrum.

Að koma þessu hlutfalli aftur í jafnvægi er mikilvægt fyrir heilsu þína og vellíðan (og það hvernig þú skynjar sjálfan þig). Þú getur fengið að vita Omega-6:3 hlutfallið þitt með því að taka BalanceTestprófið og byrja svo að taka BalanceOil – einstaka blöndu Omega-3, D-vítamíns og pólýfenóla sem hjálpa þér að ná 3:1 jafnvægi á um það bil 90 dögum.

BalanceOil hefur ýmis EFSA-viðurkennd jákvæð áhrif, þ. á m. að endurheimta eðlilega starfsemi heila1, hjarta2, ónæmiskerfis3, vöðva4 og beina5. Það ver fituefni í blóðinu gegn oxunarálagi6 og gegnir mikilvægu hlutverki í frumuskiptingu7.

Álag, mataræði og breytingar á gæðum matvæla geta raskað þessu innra jafnvægi. BalanceOil færir líkamann þinn aftur í sitt náttúrulega, heilbrigða ástand.

zz-skin-serum.jpeg

Fegraðu húðina

Hið sama gildir um stærsta líffærið þitt, húðina. Hormónin þín, tilfinningar og líferni geta valdið miklum skaða á húðinni.

24-hour Skin Serum frá Zinzino tekur á öldrun (og fegurð) á kerfisbundinn hátt með því að endurbyggja utanfrumuefnið (ECM) til að gefa húðinni styrk og teygjanleika.

Utanfrumuefnið er hlaupkenndur möskvi af örtrefjum sem er myndaður af frumunum sem hann umlykur. Það samanstendur af fjölsykrum, vatni og kollagenpróteinum sem veita húðinni einstaka endurnærandi eiginleika. Innihaldsefnin í Skin Serum frá Zinzino eru miðuð að þessu efni til að hjálpa að vernda, gera við og endurbyggja (og það sést á húðinni).

Með því að beita margþættri nálgun við að bæta heilsuna, nota BalanceOil, Skin Serum og fagna því sem gerir þig einstaka/n ertu í reynd að frelsa sjálfa/n þig. Komdu líkamanum þínum aftur í jafnvægi núna og byrjaðu á Omega-6:3 hlutfallinu þínu og húðinni.

* Þessar fullyrðingar hafa ekki verið metnar af bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu (Food and Drug Administration). Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða koma í veg fyrir nokkurn sjúkdóm.

1. DHA contributes to the maintenance of normal brain

DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegri heilastarfsemi. Fullyrðinguna má aðeins að nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 40 mg af DHA í hverjum 100 g og fyrir hverjar 100 kkal. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 250 mg af DHA. Inntaka dókósahexensýru (DHA) mæðra stuðlar að eðlilegum heilaþroska hjá fóstrum og börnum sem eru á brjósti. Veita skal barnshafandi konum og konum með börn á brjósti upplýsingar þess efnis að dagleg inntaka DHA þurfi að vera 200 mg til viðbótar við ráðlagðan dagskammt af Omega-3 fitusýrum fyrir fullorðna, þ.e. 250 mg af DHA og EPA. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k. 200 mg dagskammt af DHA.

2. DHA and EPA contribute to the maintenance of normal blood

DHA og EPA stuðla að því að viðhalda eðlilegu þríglýseríðmagni í blóði. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda 2 g dagskammt af EPA og DHA. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 2 g af EPA og DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um fæðubótarefni og/eða efnabætt matvæli skulu neytendur einnig upplýstir um að ekki skuli taka inn meira en sem nemur 5 g af ráðlögðum dagskammti af EPA og DHA samanlagt. DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegum þríglýseríðgildum í blóði. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um matvæli sem innihalda 2 g dagskammt af DHA og innihalda DHA ásamt eikósapentaensýru (EPA). Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 2 g af DHA. Þegar þessi fullyrðing er notuð um fæðubótarefni og/eða efnabætt matvæli skulu neytendur upplýstir um að ekki skuli taka inn meira en sem nemur 5 g af ráðlögðum dagskammti af EPA og DHA samanlagt.

3. Vitamin D contributes to immune system

D-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Fullyrðinguna má aðeins nota um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006

4. Vitamin D normal muscle function

D-vítamín stuðlar að viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfsemi. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.

5. Vitamin D normal bones

D-vítamín stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.

6. Olive oil polyphenols

Pólýfenólar í ólífuolíu stuðla að verndun fituefna í blóðinu gegn oxunarálagi: Að skipta mettaðri fitu í mataræði út fyrir ómettaða fitu stuðlar að viðhaldi eðlilegra kólesteról-gilda í blóði. Olíusýra er ómettuð fita. Þessa fullyrðingu má aðeins nota um ólífuolíu sem inniheldur a.m.k. 5 mg af hýdroxýtýrósóli og afleiðum þess (þ.e. ólevrópein efnasambönd og týrósól) í hverjum 20 g af ólífuolíu. Fullyrðingin krefst þess að neytandinn sé upplýstur um að jákvæðu áhrifin fáist með daglegri inntöku á 20 g af ólífuolíu.

7. Vitamin D cell division

D-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki í frumuskiptingarferlinu. Einungis má nota fullyrðinguna um matvæli sem innihalda a.m.k. það magn D-vítamíns sem tilgreint er í fullyrðingunni INNIHELDUR D-vítamín samkvæmt upptalningu í Viðauka við reglugerð (EB) nr. 1924/2006.